ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Sundferð, leikfélagi og snilldarhugmynd Ellu

22:41 › 13. september 2008



SundlauginStrákarnir mínir fóru í sund í dag. Fóru með Jóni, stuðningsmanni
fjölskyldunnar úr næsta húsi, og tveimur strákum úr þeirri fjölskyldu. Þeim fannst
það dásamleg upplifun. Ella og Kjartan kíktu í stutta heimsókn til Línu á
meðan. Eygló, tveggja ára dóttir þeirra, kom með og urðu þær Nadeen samstundis góðar
vinkonur. Önnur spjallaði hástöfum á íslensku, hin á arabísku og það ríkti
fullkominn skilningur á milli þeirra. Eygló var ekkert til í að fara svona fljótt
frá nýju Lara Croftvinkonunni eins og raunin varð en okkur langar til að gefa Línu andrúm,
það má ekki kæfa fólk þótt í góðri meiningu sé. Það er komið betra sjónvarp hjá
Línu og nú er hún kannski að horfa á Láru Croft, eins og ég. Snillingurinn hún
Ella var búin að búa til nokkur kort með algengum orðum og orðatiltækjum, öðrum megin á kortinu var setningin/orðið á
arabísku og hinum megin á íslensku. Lína varð himinlifandi og byrjaði strax að
æfa sig í að tala íslensku og gekk bara ansi vel. Hún er greinilega ákveðin í því að læra málið
fljótt. Ég efast ekki um að það gangi upp.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?