Formúlan ætti að verða ansi spennandi í fyrramálið. Sérstaklega ef það rignir eins og í tímatökunum í morgun.
Fínasta viðtal var við Línu
í Fréttablaðinu í dag þótt hún hafi reyndar verið kölluð Lena þar. Ætla
að gefa henni frí frá mér núna en Kjartan og Ella munu að aðstoða hana
við að sækja hjólið og sitthvað fleira. Ég þarf að komast að því hjá
hinum stuðningsfjölskyldunum hvort aðrar konur í hópnum langi í hjól.
Ég hélt í fávisku minni að verið væri að dytta að mörgum gömlum hjólum,
sem nægði fyrir krakkahópinn en þau hjól eru víst bara fjögur eða fimm.
Þannig að ... ef einhver lumar á hjóli í bílskúrnum/geymslunni, fyrir
börn sem fullorðna, þá veit ég að þau munu koma að góðum notum og lenda
í þakklátum höndum. Netfangið mitt er gurrihar@gmail.com. Er viss um að hjóla-aðdyttarinn okkar getur gert við litlar bilanir. Ef einhver á barnastól á hjól þá væri það náttúrlega æði!
Sá stuðningskonu áðan í gönguferð við Langasandinn með
„sína konu“ og eitt barn. Það er hvasst og frekar svalt í veðri svo
göngutúrinn stóð ekki lengi en virkaði fjörugur, þær hlógu mikið
stöllurnar í rokinu, sá ekki betur úr glugganum mínum. Brrrrrr.
Veturinn fer að skella á með öllum sínum fjölbreytileika í veðri. Get
þó ekki sagt með sanni að ég kvíði fyrir! Alltaf gaman að fylgjast með
öldunum (í réttri vindátt) héðan úr himnaríki. Ég er eins og argasti
njósnari. Nú eru fleiri niðri á sandi með stuðningsfólki og krakkarnir
hlaupa um þrátt fyrir veðrið. Það styttist reyndar í flóð en eitthvað
má nýta mjóu sandræmuna sem sést enn í.
Langar að mæla með bráðfyndinni mynd á DVD, Walk Hard
heitir hún. Erfðaprinsinn sá hana á undan mér og sagði ekki mikið annað
en að ég yrði að sjá hana svo ég hlýddi bara eins og góðri móður sæmir.
Fegin að ég gerði það. Líst líka vel á heimildamyndina um Rolling
Stones, er hálfnuð með hana.
Vona svo að dagurinn ykkar verði hreint út sagt frábær!




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
