Dagurinn gekk bara vel. Eitthvað
skolaðist til tíminn sem fjölskyldan átti að mæta á spítalann þannig að strætóferðin
verður að bíða til næstu viku. Fengum erfðaprinsinn til að keyra okkur á sjúkrahúsið
í einum grænum hvelli, það var sem betur fer eyða í stundaskránni hans þannig
að þetta bjargaðist. Litlan mín, Nadeen, var að vonum harla ósátt við að vera
stungin með sprautu en öll börnin fengu verðlaun fyrir dugnaðinn, flotta blýanta
og þau minnstu blöðrur. Móttökurnar á sjúkrahúsinu voru þvílíkt hlýlegar, allir
brosandi og glaðir. Hef ég ekki stundum sagt sögur um þetta frábæra sjúkrahús hérna
á Skaganum?
Mér hefur farið ótrúlega fram í arabísku og má teljast nokkurn veginn altalandi
...
اولاد بلدي ، وعبد الله
محمد ، سعيد علي الدراجات الهواءيه. Í þessarri setningu var ég t.d. að tala um hvað strákarnir mínir væru ánægðir
með hjólin sín.
Inga fékk frábæra upphringingu í dag, svona áður en hún skrapp til Ameríku. Lína
er búin að eignast hjól en Ragga Theódórs hjúkka á eitt gamalt og gott í
geymslunni sinni sem hún vill gefa henni og við Kjartan sækjum það á morgun ef það hentar Röggu.
Bara æði. Inga hélt að hún ætti einhvers staðar barnastól til að setja á mömmuhjólið
og þá verður þetta „fjölskyldan hjólandi“.
Lína var að elda kjúkling þegar ég fór, hún var komin með góð krydd frá
Pottagöldrum, kjúklingakrydd og pipar, fannst lyktin af þessum kryddum mjög góð
og notaði óspart á kjúllann. Hún skar niður tómata og lauk og setti með kjúklingnum
og lyktin var orðin mjög góð þegar ég yfirgaf samkvæmið. Okkur tókst að þvo
eina vél og hengja út á svalir á þurrkgrind, vona bara að mér hafi tekist að
koma henni í skilning um rokið sem von er á í kvöld, að hún verði að taka
grindina inn. Held að ég sýni stundum svolítið leikræna þjáningu í stað tjáningar ... hehehhe. Er búin að komast að því að
fjölskyldan er ekki hrifin af mjólkurvörum, jógúrti og slíku, enda eflaust ekki
mikið borðað í Írak. Ávextir eru aftur á móti í miklu uppáhaldi.
Ég færði yngri stráknum, afmælisbarninu f. 090999, tvær DVD-myndir, Spiderman I
og hina sígildu, fyndnu og góðu Ghostbusters í afmælisgjöf frá okkur Ingu. Strákarnir þekktu Spiderman
heldur betur og urðu voða glaðir. Held að gamla DVD-tækið, sem þau fengu lánað,
sé eitthvað ryðgað, það gekk ekki nógu vel að horfa á Spiderman. Kannski
tölvusnillingurinn Kjartan kíki á tækið á morgun, mögulega þarf bara að hreinsa
það. Hef tröllatrú á honum þótt hann hafi víst argað þegar hann sá flókið stjórnborðið
á þvottavélinni. Okkur Línu tókst þó í sameiningu að setja í vél! Múahaha ..
Bold: Stefanía, sem er í rosa sálfræðimeðferð hjá Taylor, viðurkennir að hún
eigi móður á lífi og Pam, „litla“ systir Steffíar, eftirlæti pabbans heitins,
sjái um hana. Stefanía er beisk út í aldraða móður sína og hefur ekki talað við
hana í 30 ár, mamman tók málstað pabbans sem barði Stefaníu með belti þegar hún
var krakki ... Nú er allt að koma upp á yfirborðið og geðlæknirinn geðþekki,
Taylor, á heiður skilinn fyrir að ná þessu upp úr Steffí, enginn í
fjölskyldunni veit þetta. Nick, nýi eigandi Forrester-tískuhússins, rekur
nokkra starfsmenn og aðrir ganga út. Ég flissaði þegar hann kynnti Donnu,
systur Brooke, sem einhvers konar stjóra. Garrison, óþolandi hönnuður sem var
hjá Spectra, kjaftakarl og leiðindapúki, er orðinn aðalhönnuður hjá Nick þannig
að ... Nick finnst að honum hafi tekist að láta Forrester-fjölskylduna axla ábyrgð
og er hreykinn af því.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
