ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Sætir Skagakrakkar, lærdómshestur himnaríkis og pínubold

14:33 › 11. september 2008



Skagabörn, Jón Yngvi lengst til hægriInga hringdi áðan og bað mig um að fylgja Línu og börnum yfir í Rauða kross-húsið á
fund. Lína var nú bara farin á fundinn þegar ég kom heim til hennar, hafði
bjargað sér þangað sjálf, dugnaðarforkurinn, enda vissi hún ekki að því að ég
ætlaði að koma. Hitti á leiðinni hóp af þvílíkt krúttlegum og yndislegum
Skagakrökkum sem ég smellti mynd af. Þar var m.a. elskan hann Jón Ingvi, sonur bloggvinkonunnar
Flórens (sem er sveitamærin Sigrún), þeirrar sem bjargaði mér á
Skagaslysó þegar ég datt í Ógæfumölinni forðum og fékk stórt gat á hnéð. Síðan er hún bara
„Flórens“ í mínum huga, enda hjúkka. Spjallaði aðeins við kennara barnanna sem var líklega með
þau í vettvangsferð. Þau höfðu stoppað til að klappa pínulitlum smáhundi sem
var í gönguferð með eiganda sínum sem kallaði þann smáa sleðahund þreytulegri röddu. Hahahhaha. Við
kennarinn fórum að tala um nýju íbúana á Skaganum, flóttafólkið, og það er
greinilegt að börnin ætla að taka vel á móti börnunum í hópnum og hjálpa þeim
að aðlagast nýja lífinu.

Lína og Nadeem í Skessuhorni í dagÁ leiðinni heim úr göngutúrnum hringdi Brynja bloggvinkona. Hún sagði að
eiginmaðurinn hefði verið búinn að gefa gömlu, góðu kaffivélina og húsbandið því
gert sér lítið fyrir og keypt nýja kaffivél handa Línu. Sagði að þær væru nú
ekki mjög dýrar. Þvílíkt fólk, segi nú ekki annað. Það á vissulega að reyna að
gera ekki upp á milli en þegar komið er ákveðið net í kringum hverja fjölskyldu
áttar fólk sig á því hvað vantar og hvað ekki. Lína var alsæl með gamaldags uppáhellingardótið,
hvað segir hún núna? Dóttir hennar skutlaði könnunni til mín áðan og þetta er fínasta
græja. Takk, Brynja og fjölskylda. Strákarnir fá hjól í dag, uppgerð og viðgerð
og ættu að vera í fínu lagi. Ingu tókst að redda þeim. Veit að Línu langar í hjól
líka og hver veit nema leynist fullorðinshjól hjá Rauða krossinum. Fólk gaf þvílíkt
mikið í söfnunina í sumar, ekki bara húsgögn.

Næ litlu sambandi við erfðaprinsinn þessa dagana, hann gerir lítið annað en
að fara í skólann, læra heima og sofa. Danskan og stærðfræðin reynast leikur
einn, sem hann átti alls ekki von á í byrjun.

Eric er orðinn beiskur út í konu sína, Stefaníu, sem getur ekki
fyrirgefið honum að hafa látið frá sér Forrester-fyrirtækið til Nicks þótt það
hafi verið eingöngu gert til að bjarga henni sjálfri frá fangelsi. Steffí segir
að hann hafi gefist upp of snemma, hann hefði átt að leyfa henni sjálfri að
tala við Nick fyrst, hún kynni lagið á helvítinu.

Nick biður
Bridget, fyrri konu sína og síðar stjúpdóttur, dóttur Erics og Brooke, um að
taka þátt í Forrester-ævintýrinu með honum en hún neitar voða sár. Líklega
verður Donna, systir Brooke og áður skotin í Ridge, núverandi hennar Brooke,
eina manneskjan fyrir utan Jackie, mömmu Nicks, sem kemur eitthvað nálægt þessu
með honum. Forrester-fjölskyldan, með Brooke innanborðs, ætlar að bretta upp
ermar og stofna nýtt tískuhús. Taylor, geðlæknir og fyrrum næstum fangi, sálgreinir
nú Stefaníu og kemst að því að heiftin og frekjan í henni, sem brýst stundum út
og er að fæla Eric frá henni, á rætur sínar að rekja til æsku hennar og dómínerandi
föður. Jamm. Sá ekki allan þáttinn í morgun, guði sé lof fyrir endursýninguna í
dag kl. 17.28.



P.s. Sá þetta http://dv.is/frettir/2008/9/11/felag-stofnad-til-hofuds-bloggara/
á dv.is.
Þetta á eflaust
að vera fyndið ... en þetta lyktar af argasta einelti. Veit ekki til þess að Stebbi
hafi gert nokkrum mein með færslum sínum.

 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?