
Langt síðan ég hef sett inn myndir af sætustu tvíburum í heimi. Úlfur og Ísak
eru fjörugir, skemmtilegir frændur mínir og algjörir gleðigjafar. Bloggvinir mínir
ættu flestir að muna eftir þeim.
Strákarnir fæddust báðir með skarð í vör og gómi
og hafa farið í þrjá uppskurði. Úlfur er með hjartað hægra megin, ja, er bara
spegilmynd af Ísaki, svona innvortis séð. Þeir eru svo líkir í útliti að þeir
hljóta að vera eineggja þótt þeir séu sagðir tvíeggja. DNA-próf (rándýrt) er
það eina sem getur skorið úr um það.
Annað: Það er SVO langt síðan að ég hef
bloggað um þá að þeir eru komnir með bílpróf og farnir að keyra um allt.

Hinir strákarnir mínir eru komnir á hjólin sem Inga fann handa þeim og hjóla
nú um allt alsælir. Inga skrapp með þá í hjólatúr í dag og komu þau við á
hlaðinu hjá mér norðanmegin. Mikil gleði og hamingja. Sá yngri hjólaði á stóra bróður sem kenndi honum enn og aftur á handbremsuna, þolinmóður og góður.
Annars bara allt
gott að frétta. Helgin að koma með öllum sínum dásemdum og svo hefst annað líf á
mánudaginn þegar Ásta mætir kl. 6.30 sharp við hlið himnaríkis, eða á bílastæðið.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
