ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Skemmtileg heimsókn

19:47 › 10. september 2008



Við matarborðiðKíkti í heimsókn til Línu í dag og sýndi henni sitt af hverju. Henni
fannst voða gaman að sjá viðtalið við sig í Kastljósi gærkvöldsins í
tölvunni en hún fékk, eins og hinar fjölskyldurnar, notaða tölvu að gjöf frá
Verzlunarskólanum. Ég sýndi henni líka þýðingarforritið af google og það er bara
snilld.

Litla snúllan, Nadeem, var svolítið ergileg en Lína sagði að hún
saknaði afa og ömmu alveg rosalega mikið, hún var svo náin þeim. Inn á milli
var hún þó glöð og við skoðuðum nokkrar bækur saman. Ég sagði nokkur orð úr bókunum sem hún síðan
endurtók á lýtalausri íslensku. Ekki að spyrja að börnum, þau eru eins og
svampar ... Þau verða örugglega öll orðin vel talandi á íslensku eftir stuttan
tíma. Sérstaklega þau yngstu sem byrja bráðum í leikskólanum.

Að koma úr EinarsbúðLína var að elda handa börnunum þegar ég kom og var svona að átta sig á
því hvað væri til í kotinu. Inga kom skömmu síðar og við fórum í innkaupaferð í
Einarsbúð. Þar var önnur palentínsk kona fyrir og þær voru ánægðar að hittast.
Einar kaupmaður frétti af ostaskeraleysinu á heimilinu og gaf Línu eitt stykki,
ekki málið. Mér tókst með leikrænni tjáningu þegar heim var komið að bjarga
henni frá því að skella 2 lítra kók í frystinn ... hehehhe.

Enn er fjölskyldan sjónvarpslaus, Kjartani tókst ekki að laga þetta litla,
gamla sem hún er með, það vantaði fjarstýringuna. Það kemur gott sjónvarp eftir
nokkra daga og þá verður gaman. Kjartan tók litluna sína með, hana Eygló, og hún var hálfsmeyk við allt þetta ókunnuga fólk.

Kíkt á KastljósVinkona Línu kom í heimsókn með börnin sín fjögur og okkur Ingu
fannst orðið svo kátt í kotinu ... vildum líka gefa þeim frið, að við létum
okkur hverfa. Æsispennandi strætóferð verður síðan farin á föstudaginn með Línu
og börnum en þá verður læknisskoðun á sjúkrahúsinu. Sá á börnunum sem komu í
heimsókn að þau voru þegar búin að fara í slíka skoðun, greinilega í blóðprufu,
þau voru með plástur ...

Svo átti yngri strákurinn „minn“ afmæli í gær og mögulega verður lítil
veisla á morgun. Nóg að gera þessa dagana. Unglingarnir úr hinni fjölskyldunni
eru svo æðislegir, brosmildir og glaðir með þetta allt. Eldri systkinin tala
bæði smávegis í ensku og ég er kolfallin fyrir þeim líka.

Kjartan og EyglóSvo veit ég að ýmislegt á eftir að koma betur í ljós varðandi hefðirnar ... Lína
setur t.d. bara á sig höfuðklút þegar hún fer út, svona eins og við förum í úlpur,
en notar hann ekki heima. Þegar Kjartan kom til að laga sjónvarpið og þvottavélina
bjóst ég við að hún skellti á sig slæðunni, en svo var nú aldeilis ekki, hún kemur
fram við hann á nákvæmlega sama hátt og okkur Ingu. Konan sem við hittum í
Einarsbúð var í sparifötunum, ógurlega fallegum en framandi fötum. Heima gengur
hún eflaust í gallabuxum, eins og Lína.

Þetta verður skemmtilegt og ekki síður lærdómsríkt verkefni ... auðveldara
með hverri vikunni, tjáskiptin eru kannski erfiðust en samt ótrúlegt hvað við getum þó
gert okkur skiljanlegar ...



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?