Fékk yndislegan
tölvupóst áðan frá Skagakonu sem sagði mér af móttökum sem ein fjölskyldan fékk
í blokkinni sinni. Hér kemur úrdráttur úr bréfinu:
Það kom hingað maður í vinnuna til mín og sagði
mér það að ein fjölskyldan hefði verið að flytja í íbúð beint á móti hans
fyrrverandi, syni hans, tengdadóttur (sem kom hingað til Íslands frá Gvatemala
fyrir rúml.ári ) og eins árs tvíburum ;-)
Nema það að þessi maður fór inn á google-translate,
http://translate.google.com/translate_t#
skrifaði þar á ensku og þýddi yfir á
Arabísku: Verið velkomin í blokkina og
ef ykkur vantar eitthvað þá endilega komið bara og biðjið um aðstoð, við búum í
íbúðinni beint á móti. Þetta prentaði hann út, fór og keypti blómvönd og
þegar hann rennir upp að blokkinni eru þau einmitt að koma heim ásamt stuðningskonu
og túlkinum. Hann gefur konunni blómin og réttir henni blaðið sem hann prentaði
út á Arabísku. Konan varð rosalega ánægð og túlkurinn alsæll og á leiðinni
upp hittu þau tengdadótturina, börnin hlupu inn í íbúðina hennar og beint inn í
stofu að skoða dótið hjá litlu tvíburunum.
Um rúmlega níu sama kvöld er bankað hjá þeim og
þar fyrir utan stendur „flóttakonan“ og eftir smá líkamstjáningu ..hehe.. fara
konan, sem heitir Anna og tengdadóttirin sem heitir Thelma, með henni yfir í
hennar íbúð, þar var hún með fisk, ýmislegt meðlæti, eldavél og dósaupptakara ...
sem hún var ekki alveg viss um hvernig ætti að nota. Svo þær tóku sig bara til
og elduðu á staðnum fyrir konuna og börnin þessa dýrindis máltíð og þau voru
svo alsæl.
Þetta fannst mér svo frábært hjá þeim að ég mátti
til með að leyfa þér nýbakaðri ömmunni að heyra.
Fleiri yndislegheit ... Forlagið ætlar að gefa öllum fjölskyldunum Stóru
myndaorðabókina en það er einstök bók sem á eftir að hjálpa fólkinu gríðarlega
mikið í íslenskunáminu. Þetta er engin smágjöf, hver bók kostar um 15.000
krónur og þetta eru átta stykki!
Komst að því í gær að Lína er hrifin af kaffi (alvörukona) og fer núna
á eftir og kenni henni að búa sér til góðan kaffisopa. Hún er með brúsa,
plastkaffitrekt sem kom í söfnuninni í sumar, nokkra filterpoka og svo
afgangskaffi úr afmælinu mínu sem er ekki slorkaffi, Krakatá frá Kaffitári. Nú
verður búinn til góður sopi í dag. Held að það megi alveg drekka kaffi þótt það
sé akkúrat Ramadan núna. Annars fær hún sér bara sopa í kvöld.
Viðbót:
http://www.unhcr.org/news/NEWS/48c54ef44.html




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
