ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Tekjur nokkurra bloggara ...

09:34 › 8. ágúst 2008

Guðdómleg strætóferð í morgun og svo beið mín glóðvolgt DV í vinnunni með tekjum heitustu bloggaranna ... og þeirra köldustu. Ég fór í flokk með þeim kúlustu ... æ, grín, þetta var ekki flokkað en ég er brjáluð út af myndinni af mér í blaðinu, ég lít út eins og vélsagarmorðingi, nú verður myndasafni DV rústað, djö ...Tekjur nokkurra súperdúperbloggarra:VélstýranAnna Kristjánsdóttir, 503.182 krónurStefán Friðrik Stefánsson, 2.923 krónurSóley Tómasdóttir, 562.962 krónurStefán Pálsson, 367.044 krónurJón Valur Jensson, 116.352 krónurKolbrún Baldursdóttir 326.673 krónurKatrín Anna Guðmundsdóttir 153.894 krónurJenný Anna Baldursdóttir, 182.343 krónur... og undirrituð var með 335.000 krónur (ég veit að þið lifið daginn ekki af nema vita þetta) Það var víst algjört  misminni hjá mér að ég hefði verið með um milljón á mánuði eins og ég bloggaði um nýlega, bið innilega velvirðingar á þessum mistökum. Ætlaði reyndar ekki að vera svona sjálfhverf að birta eigin tekjur en ég ætla ekki að vera með neina fokkings gervihógværð ... svona þegar síðasta helgi lífs míns sem 40 plús konu er að renna upp. Svo getur þetta líka virkað lokkandi á berklaveik, bláfátæk ljóðskáld sem langar í fallega og prýðilega fyrirvinnu ... svo ég fari nú kannski að ganga út.Knús í bili á þessum klikkaða föstudegi. Þá er ég ekki bara að tala um sólina, heldur þá vinnu sem bíður mín í dag ... en það er gaman í vinnunni, elsku vinnunni minni. Hafið það dásamlegt í dag og passið ykkur á sólinni.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?