Ég hef hingað til skrifað um kosti þess að ferðast með strætisvögnum milli Akraness og Reykjavíkur. Þar sem undantekningarnar sanna víst regluna var ég harkalega minnt á í morgun hversu dásamlegar þessar ferðir eru vanalega þegar „farþegi frá helvíti“ steig upp í vagninn. Örugglega yndislegur maður og það allt EN ..... Fyrsta dæmi: Það tekur þrjár mínútur að keyra frá endastöð og að himnaríki, á morgnana. Þegar ein mínúta var liðinn hringdi maðurinn í Strætó bs alveg í losti, hélt að hann hefði misst af vagninum. Hann hefði átt að spyrja mig sem kom þarna aðvífandi en sumir elska gemsana sína og taka þá fram yfir fallegar konur á stoppistöð ...
Greinilega aðkomumaður ... Hann hlammaði sér niður við hliðina á mér hinum megin við ganginn og það var í fínu lagi ... hélt ég. Ég var viðkvæm eins og postulínsbrúða eftir of lítinn nætursvefn og ætlaði að reyna að ná Nirvana-hugarástandi og hvílast á leiðinni. Þegar við komum að Hvalffjarðargöngunum vissi ég allt um hann, ekki að hann segði orð við mig, hann talaði bara nokkur símtöl. Hann talaði líka hátt, mjög hátt. Mig langaði að garga: „Fyrirgefðu, en það er fólk að reyna að sofa hérna!“ Ég veit allt um þennan áður ókunna mann. Hann var að fara til læknis í Reykjavík, hann elskar kærustuna sína, hann er kurteis og góður við mömmu sína, hann heldur að maður græði mikið á kaupum og sölum íbúða af því að maður fái svo mikið endurgreitt frá skattinum í ágúst. Ég var farin að hafa áhyggjur af bílstjóranum sem fékk þetta háværa málæði allt á hnakkann. Ég hef taugar úr stáli en ég fann samt hvernig rafgeymasýran bullaði í æðunum á mér. Ég var full morðfýsnar út í ... síma! Ég veit reyndar miklu, miklu meira um manninn eftir öll símtölin en það á ekki heima á virðulegu bloggi. „Ég myndi láta lítið fyrir mér fara á næstunni, hann er brjálaður út í þig,“ sagði hann t.d. í einu símtalinu ... úúúúÁ leið niður Lopabrekkuna (Ullarnessbrekkuna í Mosó) hallaði maðurinn sér fram og spurði bílstjórann hvort hann væri virkilega með stillt á barnastöð. „Já, Latabæ,“ sagði þessi elska, „svo kannski trúarlega stöð á morgun, Bylgjuna hinn, bara eftir því hvaða stöð síðasti bílstjóri hefur stillt á.“ Ég bætti ekki um betur (alveg óvart) og spurði í gríni hvort við mættum þá eiga von á honum frelsuðum á morgun, hvort hann keyrði kannski út af og út í sjó í beygjunni niður í Kollafjörð, svona ofsatrúar-terroristi sem liti á nokkra strætófarþega sem fórnarkostnað í stríði ... hmmm, það féll heldur ekki í sérlega góðan jarðveg, enda búið að skemma morguninn fyrir bílstjóranum sem er vanur rólegum, greindarlegum og ekki síst ofsafallegum farþegum.
Strætó nr. 15 rann inn á stoppistöðina í Háholtinu þegar við komum þangað þannig að við urðum að hlaupa yfir götuna en ég held að þessum háværa hafi verið refsað á sinn hátt því hann ákvað að hinkra vitlausu megin við götuna eftir strætó, múahahaha, hann endaði örugglega uppi í sveit, múahahahahaha. Nema reyndar hann hafi sloppið í 15 án þess að ég sæi til.Ég er búin að gulltryggja eitt: Maðurinn er nú kominn í lífstíðarbann hjá Strætó bs, það er komið byssuleyfi í strætó fyrir okkur farþegana og svo er búið að skella nýju bannmerki við hliðina á merkjunum sem ég sá í gær, þessum: BANNAÐ AÐ BORÐA ÍS, BANNAÐ AÐ DREKKA, MÁ KOMA MEÐ HUND SEM ER MEÐ MÚL og nú stendur: BANNAÐ AÐ TALA HÁTT, VIÐKVÆMIR FARÞEGAR/BÍLSTJÓRI. Drjúg eru morgunverkin.Í leið 18 við Ártún voru yndislegir farþegar að vanda. Bara þrír Indverjar og svo hægláti maðurinn. Ógreiddi maðurinn er algjörlega horfinn! Strætó hefur einhvern veginn lag á því að losa sig við óæskilega farþega. Martraðarmaðurinn háværi í Skagastrætó í morgun mun ekki birtast aftur og svo er okkur ekkert um ógreitt fólk gefið heldur. Snyrtimennskan ávallt í fyrirrúmi í strætó!Útrás dagsins var í boði mínu ... syfjaðar stuðkveðjur úr Hálsaskógi!!!
Blogg
Farþegi frá helvíti ...
13:30 › 7. ágúst 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
