... eða jafnvel ráðherrabílstjórar þegar kollegi þeirra er dæmdur fyrir stuðning við hryðjuverkamenn bara af því að hann ók þeim? Eða kannski femínistar, það er alltaf sígild tískuspurning. Hehehe ... Annars ætlaði ég bara að sýna ykkur í kristalskúluna mína. Hvern langar ekki til að sjá framtíðina? Þ.e.a.s. framtíðina í boldinu svona tvö ár fram í tímann! Hér kemur heill bold-þáttur þar sem Nick og Bridget eru að fara að gifta sig. Barnapía úr þáttunum sem ég vissi ekki að væri frænka Forresteranna er ástfangin af Nick en Bridget vill gleðja hana í tætlur og neyðir hana framkvæma hjónavígsluna ... með næstum því hroðalegum afleiðingum. Þarna eru Ridge og Brooke happí saman og Brooke getur meira að segja talað við Nikc tilvonandi tengdason sinn og fyrrum eiginmann af vináttu. Taylor, fyrri kona Ridge, mætir með stjúpson Ridge og son Brooke, upp á arminn, hann Rick sem er ótrúlega karlalegur miðað við að eiga líklega að vera 20-25 árum yngri en Taylor. Eric, pabbi Ridge, er greinilega kvæntur Donnu, systur Brooke, en Felicia, dóttir Erics og systir Ridge, reynir víst sitt til að skemma það hjónaband ... ég gægðist einum þætti framar í tímann þar sem þetta kom í ljós. Nú, þeir sem vilja lifa í fáfræði um framtíðina í boldinu ættu ekki að hafa lesið þetta og því síður að glápa á þáttinn sem er hér fyrir neðan:
Blogg
Hvar eru leigubílstjórar núna?
23:58 › 6. ágúst 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
