ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Bloggarar afhjúpaðir og smá bold

21:39 › 5. ágúst 2008

Bloggarar Þeir bloggarar sem héldu að þeir „slyppu við“ að tekjur þeirra yrðu gerðar opinberar geta nú tekið gleði sína þar sem www.dv.is
ætlar að opinbera þær fljótlega. Held að þetta sé ekkert leyndarmál svo
ég blaðra því bara. Annars segja þessar útsvarstölur ekki allt, sumir
lifa á fjármagnstekjum, aðrir fá áætlun, enn aðrir eiga fyrirvinnur og
einhverjir vinna hlutastörf. Loksins eitthvað fútt í lífinu fyrir okkur
sem hafa sogast inn í heim bloggsins og finnst ekkert þar fyrir utan
skipta nokkru máli!

 

Fékk guðdómlegt far með drossíunni hennar Ástu
í morgun. Brottför frá himnaríki var kl. 6.55 og geri aðrir betur. Með
latte í annarri og latte í hinni hoppaði ég léttfætt niður himnastigann
og var mætt í vinnuna upp úr kl. 7.30.

 

Darla heitin Taylor er komin í varðhald
og appelsínuguli búningurinn fer henni bara nokkuð vel. Hún þráir
heitast af öllu að afplána langan dóm, finnst hún ekki eiga neitt annað
skilið fyrir að hafa ekið á Dörlu og orsakað dauða hennar. Thorne er
enn öskureiður yfir því að hafa næstum trúlofast Taylor morðingja.

Stefanía reynir að fá garðyrkjumanninn
grunsamlega til að segja dómaranum frá því sem hann sá en hann varð
vitni að slysinu og getur vottað um það sem gerðist. Sá ætlaði í
upphafi að kúga fé út úr Taylor en guggnaði á því þegar Phoebe skar
næstum af honum hendina, alveg óvart.

Storm og Taylor í réttarhöldunum Lögfræðingur að nafni Storm
reynir að verja Taylor en það er erfitt verk þar sem hún vill taka út
refsinguna og þjást sem mest. Dómarinn er sammála henni í því og dæmir
hana í 10 ára vist í fangelsi með hámarksöryggisgæslu.

Stefanía og „garði“ hlaupa inn í dómsalinn
og bregður Thorne mikið þegar hann heyrir þennan trúverðuga fyrrum
umrenning segja það sama og ástvinir hans fram að þessu, eða að þetta
hafi verið slys.

Svo bara féll tjaldið
og enginn mun hvað gerist fyrr en næsti þáttur verður sýndur. Mig
grunar að Taylor sitji ekki inni í 10 ár því að hún fer víst fljótlega
að deita Nick, eignast með honum barn og síðan deitar hún Rick, son
Brooke, en Brooke er einmitt byrjuð á föstu með Ridge einu sinni enn.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?