ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Símtöl, misskilningur og fullt af boldi ...

14:15 › 30. ágúst 2008



KvikmyndavélFékk skemmtilega upphringingu áðan frá gamalli nágrannakonu í bænum. Hún
vinnur við nýja, íslenska spennuþætti sem verið er að taka upp fyrir sjónvarp
og vantaði góða manneskju til að sjá um kaffið ofan í mannskapinn á mánudaginn þegar tökur fara fram rétt við Akranes.
Hefði hlaupið til sjálf ef ég væri ekki að fara að vinna. Er búin að finna góða
og hressa Skagakonu í verkið og henni fannst þetta bara skemmtilegt. Samt sagði
ég henni að það væri ekkert víst að Baltasar Kormákur væri einn leikaranna. Hún
hló bara og sagðist eiga svo sætan karl að það skipti engu ... hehehe

Í vikunni fór ég á góðan og fróðlegan fund hjá Rauða krossinum vegna komu
palestínsku flóttakvennanna á Skagann. Að mörgu þarf að huga og m.a.
tungumálamisskilningi ... Flóttamannafjölskylda, sem hafði verið um hríð á Íslandi,
fékk bréf frá Rauða krossinum sem hófst á Kæra
fjölskylda
. Konan sem opnaði bréfið þekkti orðið fjölskylda en fletti upp í orðabók á kæra ...

Shane grunsamlegi garðyrkjumaðurinnBOLD: „Þessi rotta er
að plana eitthvað
, sérstakan kvöldverð kannski,“ sagði slökkviliðsmaðurinn
Hector áhyggjufullur og átti við Shane, garðyrkjumanninn grunsamlega, sem hefur
ofurást á Phoebe og hún þorir ekki að hafna því að hann er lykilvitni í réttarhöldunum
gegn Taylor, móður Phoebe. Nokkuð er til í þessu þar sem sérstakur kvöldverður
bíður Phoebe, kertaljós og krúttlegheit. Hún sendir Shane út í vínbúð til að
kaupa kampavín og hringir síðan óttaslegin í Hector. Verst að Shane hafði
gleymt veskinu og kom til baka þegar hún var að tala ... og hafði líka nýlega
uppgötvað ljósmyndir af sjálfri sér uppi á vegg hjá Shane.

Harry, vinur
Phoebe,
og ég veit ekkert um, keyrir í ofboði og finnur heimili Shane og bankar
upp á. Hann vill bjarga dömunni sem vill þó ekki láta bjarga sér, segist ráða
við þetta. Phoebe segir við Shane að hún laðaðist vissulega að honum en væri
ung og þetta gengi allt of hratt fyrir sig. Réttarhöldin eiga að vera daginn
eftir og þau gætu vonandi fagnað saman eftir þau. Shane gleðst við þetta.

Saksóknari kallar
dr. Taylor (geðlækni) lygara og morðingja í opnunarræðu sinni og kviðdómurinn
horfir á doktorinn með viðbjóði. Þetta verður erfitt verk fyrir Storm
lögfræðing sem er, held ég, bróðir Brooke.

Bridget talar við
barnsföður sinn, Dante, mann og barnsföður Feliciu, systur Bridgetar, og segir
að hún sé búin að missa fóstrið. „Ó, ég trúi þessu ekki, barnið okkar!“ segir
Dante. „Ég er svo misheppnuð,“ segir Bridget en þetta er í annað skipti sem
þessi elska missir fóstur.

Shane kemur ekki
sérlega vel fyrir í vitnastúkunni, enda hefur hann unnið sem garðyrkjumaður hjá
Taylor í einhverja mánuði og saksóknari lætur hann líta út fyrir að vera
tryggan starfsmann sem myndi ljúga fyrir atvinnuveitanda sinn.

Þegar Storm
verjandi gagnspyr Shane
og er kominn vel af stað þarf dómarinn að gera hlé til
næsta morguns ... og Phoebe í djúpum skít, þarf að hitta ógeðið hann Shane ... Harry liggur í leyni og þegar Shane
gerist nærgöngull stekkur hann fram og kýlir Shane. Shane kýlir til baka og
Harry rotast. Hector, sem BB-aðdáendur vita að blindaðist í eldsvoða, kemur með
beisbollkylfu og slær út í loftið. Þátturinn endar áður en áhorfandinn fær að
vita hvort hann hitti Shane eða Phoebe! Það blæðir alla vega úr einhverjum ...

Símtal áðan: „Ég ætla að vera rosalega góð við þig ... og
kynna þig fyrir Herbalife!“ Ég keypti auðvitað margra ára birgðir og svo er ég
líka að hugsa um að verða Vottur Jehóva eftir fróðlegar heimsóknir undanfarið
...



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?