Nóg að gera í himnaríki núna. Formúlan í sjónvarpinu og þáttur Sverris
Stormsker að hefjast í endurtekningu, nú getur fólk heyrt hvað það er sem
Sverrir sagði við Guðna sem orsakaði það að sá síðarnefndi rauk á dyr ... www.utvarpsaga.is, og Hlusta í beinni.
Svo
ætla tvíburarnir hugumstóru, Úlfur og Ísak að skreppa í pikknikk á Langasandinn
með ömmu, afa og fleirum á eftir. Kannski maður klæði sig á þessum letidegi og hitti
litlu elskurnar á sandinum.
Fór í sumarbúðirnar í gær og heimsótti Hildu. Gætti þess auðvitað vandlega að hitta á vöffludag ... fékk heitar vöfflur með súkkulaðiglassúr og rjóma sem er einstaklega góð samsetning og minnir á bolludaginn og jólin í einum pakka.Sjálfur Haffi Haff mætti
um kvöldið sem leynigestur og trylltust unglingarnir af gleði, enda er Haffi
einn sá heitasti í bransanum núna.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
