Það virtist vera hið besta veður rúmlega 6 í morgun, engin rigning og gluggarnir mínir því þurrir að innanverðu. Þegar ég rýndi út á sjó sá ég að hann var ansi krumpaður og bylgjurnar skrýtnar. Þá vissi ég að það væri nokkuð hvasst. Bjartsýniskonan Ásta var mætt 6.30 að vanda og tilkynnti mér að litlu hefði munað að hún sleppti því að fara vegna hvassviðris. „Ef það væri hálka núna hefði ég ekki farið, sagði hún. „Nú? Hviður á Kjalarnesi eru komnar talsvert niður fyrir 30 m/sek,“ sagði ég steinhissa við ævintýrakonuna Ástu. Enn er mér í fersku minni þegar við fórum einn „góðviðrisdaginn“ fyrir kannski 2 árum á milli og hviðumælirninn í Mosó sýndi hviður upp á 42 m/sek. Ásta viðurkennir að vera orðin meiri kjúklingur en áður. Það er reyndar hættulegra að fara með strætó í miklum hviðum en straumlínulaga einkabíl, hún viðurkenndi það reyndar. Það vantar illilega annan hviðumæli á Kjalarnesið og staðsetja hann nær Hvalfjarðargöngunum því stundum er afar hvasst þar en hálfgert logn þar sem mælirinn er, skammt frá Kollafirði. Á þeim stað (milli gangna og Grundahverfis) hafa orðið mörg óhöpp vegna hviða ...
Við sáum fokna gáminn á leiðinni í bæinn, þennan sem orsakaði lokað Kjalarnes um tíma í nótt, eins og kom fram í fréttunum kl. 8. Litum skelfingu lostnar hvor á aðra og vorum afar fegnar því að vera ekki á gámabíl, heldur drossíu. Mættum strætó Rvík/Akranes í Kollafirði en ég kunni ekki við að veifa bílstjóranum sem hefði að öllu óbreyttu kippt mér með frá Skaganum í ferðinni kl. 7.41. Hann hlýtur að vera svekktur að hafa misst mig sem farþega, sá verður glaður á föstudaginn eftir viku þegar ég kem í strætó hækka fegurðarstuðul farþeganna ... djók!Jæja, þá er Michael Jacson búinn að ná okkur Madonnu í aldri ... hann er fimmtugur í dag, blessaður öldungurinn. Sem minnir mig á að Borghildur Anna á líka afmæli í dag. Michael og Borghildur, innilega til hamingju með afmælið.Ég mæli svo um og legg á að dagurinn ykkar verði hrikalega skemmtilegur og einnig fullur af óvæntum happdrættisvinningum!
Blogg
Krumpaður sjór og fokinn gámur
08:35 › 29. ágúst 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
