Ég get ekki að því gert en ég fyllist alltaf miklum spenningi þegar von
er á vitlausu veðri. Eini gallinn er sá að opnanlegu fögin í gluggum himnaríkis
eru ekki vatnsheld frekar en nýju fínu svaladyrnar. Samt spennandi. Kvöldverkin
verða því þau að troða eldhúsrúllubréfum til að þétta þau opnanlegu og setja
handklæði í gluggana fyrir neðan. Búist er við snörpum hviðum á Kjalarnesi,
enda austanátt í kortunum og því verður kannski bara klikkað fjör í bílnum með Ástu
upp úr kl. 6.30 í fyrramálið. Mikið er gott að búa á Íslandi þar sem allra
veðra er von. Hugsa þó með samúð til blaðberanna sem þurfa að berjast með
dagblöðin til okkar fréttafíklanna eldsnemma í fyrramálið. Væri ekki sniðugt að nefna óveður vetrarins (þetta veður telst varla með þar sem enn er sumar) eftir alþingismönnunum okkar? Það koma varla fleiri lægðir en 63 á einum vetri, eða hvað ... Ja, ef við byrjuðum t.d. núna, svona til öryggis, þá gæti óveðrið sem hefst í nótt gengið undir nafninu Vatnsveðrið Arnbjörg Sveinsdóttir, það næsta Fellibylurinn Atli Gíslason, (ef t.d. leifar Gustavs berast hingað) þá Óveðrið Ágúst Ólafur Ágústsson o.s.frv. Annars væri auðvitað snjallara að nefna þetta veður sem skellur á í nótt Ágúst Ólaf af því að það er enn ágústmánuður.
Soðin ýsa var í hádegismat í mötuneytinu í dag, bara skrambi góð með
„karpullum“ og bræddu smjéri. Ekki skemmdi fyrir að Davíð, ástkær
frændi minn og systursonur, var borðherrann minn.
Davíð hóf nýlega nám í
Kvikmyndaskólanum sem er staðsettur á hæðinni fyrir ofan mig í Hálsaskógi og líst
ótrúlega vel á námið.Við hámuðum í okkur fiskinn og salat og skiptumst á
fréttum um frábæru fjölskylduna okkar. Bara jólin.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
