„Eitthvað fannst mér ræðan hans Ólafs í gær sérkennileg,“ sagði Ásta í morgun. Umferðin á Kjalarnesinu var lítil, enda klukkan bara 6.41. Við vorum löngu á undan fyrsta strætó frá Skaganum sem var í þessum töluðum orðum að leggja af stað frá Skrúðgarðinum. Við vorum báðar syfjaðar og nokkuð andlausar. Ég var þakklát Ástu fyrir þessa tilraun til samræðna. Ásta drakk jógúrt á leiðinni, það var ekkert latte úr himnaríki að þessu sinni, götumálin búin og verða keypt í Rekstrarvörum í dag. „Ja, hann Ólafur er bara svo jákvæður að hann „pípar“ yfir neikvæðu orðin, þess vegna fengu strákarnir silfrið,“ útskýrði ég og bætti við: „Mér fannst ræðan hans kúl en aftur á móti fannst mér skrýtið þegar múgurinn hrópaði: „Islam, Islam,““ Kannski er Ólafur búinn að heilaþvo þjóðina og orðið BÍP virkji einhverja stöð í heilanum sem verður síðan til þess að við stuðlum að heimsfriði, hver veit!Skjúsmí ... en það hefur hljómað í fréttum í allan morgun að flugvél seinki um nokkra klukkutíma! Er þetta frétt? Myndi BBC fjalla um seinkun hjá British Airways í mörgum fréttatímum í röð? Hmmmm, pælingar okkar Bjarkar í vinnunni ...Silfraðar stuðkveðjur út Hálsaskógi með ósk um frábæran dag ykkur til handa ...
Blogg
Heilaþvottur Ólafs?
09:31 › 28. ágúst 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
