ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Ekki beint skúbb ... en samt ... kvenleg umræðuefni, textamisskilningur og fleira

13:35 › 27. ágúst 2008

Vikan var að koma í hús og á einni opnunni má finna fjölmörg textabrot úr vinsælum lögum ... og síðan kolrangan texta sem fólk syngur óafvitandi með. Stelpurnar á Gestgjafanum grétu úr hlátri yfir greininni og kannski ekkert skrýtið. Dæmi:Madonna like a virginALELDA með Nýdönsk: Rétt lína: Alelda, sáldrandi prjáli ... Misskilningur: Að elda, sjálfan þig bjáni.LIKE A VIRGIN með Madonnu: Rétt lína: Like a virgin, touched for the very first time. Misskilningur: Like a virgin, touched for the thirty-first time.Og svona 30 bráðfyndin atriði í viðbót ... Ég söng alltaf í gamla daga: Í bláum skugga, við brosum um braut (þótt ég hafi ekki skilið nokkuð í því) en þetta á víst að vera Í bláum skugga, við broshýran reyr ... eða er það ekki? Þegar Úlfar kokkur kom í vinnuna áðan sagði ég honum að Ylfa Ósk, tíkin hans, væri í tryllri ástarsorg, hún væri ekki bara svona sjúk í ... þið vitið, eftir að hafa hitt sæta hundinn á Akureyri og átt með honum unaðsstundir. Benti honum á að þessi hundategund væri einfarar og afar tryggir maka sínum, svona eins og svanir .... Úlli fékk hláturskast og sagði mér frá minnst 10 "tengdasonum" af öllum stærðum og gerðum sem hann hefði eignast í gær og fyrradag. Þeir standa hinum megin við girðinguna umhverfis húsið og mæna á Ylfu og gera sig tælandi ... Ylfa er víst lítið skárri ef ég skil Úlla rétt. MorgunverðurÉg samdi frið við kokkinn í morgun. Hann manaði mig til að fá mér venjulega skammtinn minn af kotasælu og grænmeti til að hann sæi með eigin augum yfir hverju ég nöldraði (eða mörg hundruð prósenta hækkun á morgunverðinum í gær). Hann horfði smástund á þetta, bað mig um að fá mér aðeins meira grænmeti og  verðlagði þetta svo á 80 krónur, sem er bara 100% hækkun, ekki mörghundruð prósent eins og í gær. Hann þyrfti að geta borgað ballettíma fyrir dóttur sína, borgað fólki laun, borgað rafmagn og slíkt. Við skildum í mestu vinsemd. Hugsa sér hvað krepputalið hefur gert manni, nú nöldrum við kokkurinn yfir nokkrum krónum, t.d. verði einnar gúrkusneiðar ... Helvítið hann doktor Gunni, eða okursíðan hans, ég er orðin algjör nánös og sífellt hrædd um að verið sé að svíkja mig. Ekki hefði mér, fyrrum greifanum, komið það til hugar fyrir nokkrum mánuðum. Ætla að gera eins og Björk, samstarfskona mín, og taka bara með mér nesti í framtíðinni. Snuðrað í saumóVið Björk töluðum einmitt svolítið um aumingja Baggio í morgun, eða þegar hann brenndi af skoti fyrir Ítala í vítaspyrnukeppni úrslitaleiksins í HM um árið og það þýddi sigur Brasilíu. Ef karlmenn halda virkilega að við konur tölum bara um tíðahringinn, mataruppskriftir og barnauppeldi þá leiðréttist það hér með. Við þurfum ekki að láta klína saumaklúbbaheiti á spennuþætti til að fást til að horfa á þá ... Ó, strákar, það þýðir ekki að lesa bara Cosmo og halda að þið skiljið okkur. Lesið frekar Vikuna ... ónei, það er saumaklúbbablað sem fylgir henni núna, argggggg. Djöfull var þetta gott á mig. Alveg eins og þátturinn sem Stöð 2 auglýsir grimmt sem saumaklúbbaþátt, Woman´s Murder Club. Sonurinn spurði mig um daginn hvort ég ætlaði ekki að horfa en ég svaraði því til að mig langaði ekki til að horfa á samsull af majónesi, saumaskap og slúðri ... eins og karlar sjá saumaklúbba fyrir sér ... og með dassi af grimmilegum fjöldamorðum sem þær leysa á háum hælum á meðan þær sofa hjá samstarfsmönnunum og svona .... Sonurinn starði á mig. „Þetta er ekkert þannig þáttur, bara rosalega spennandi sakamálaþáttur,“ sagði hann. Þannig að fordómar mínir vegna viðbjóðslegra auglýsinganna á þáttunum hafa kannski haft af mér góða skemmtun á sunnudagskvöldum. Mér fannst eitthvað niðrandi við þær þótt mér finnist ekkert niðrandi við saumaklúbba, æ, einhvern veginn verið að troða okkur konum öllum í sama farið.Jon StewartSvo er ég með geggjaðar fréttir!!!! The Daily Show, einn umtalaðist og verðlaunaðasti, beittasti og fyndnasti spjallþáttur ever með Jon Stewart hefst á Stöð 2 kl. 22.35 þriðjudaginn 9. september. Ég er búin að marggráta yfir því að við höfum bara Jay Leno ... sem ég missti nett álit á eftir 11/9 2001 þegar hann gerði grín að fátæka fólkinu í Afghanistan og á þátt í því með fleirum að koma því inn hjá fólki að allir múslimar séu hryðjuverkamenn ... En Jon Stewart verður reyndar ekki "daily", heldur bara á þriðjudögum í Global Edition. Hvað næst? Verður lífið fullkomið og við fáum Conan O´Brien ... sem er t.d. 100 sinnum fyndnari en Leno?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?