Hvað nú?
Ólympíuleikarnir búnir, líka menningarnótt og ekkert fram undan til að
hlakka til og æsa sig yfir nema þá helst blessuð jólin og klikkunin í
kringum þau. Fyrrihluti árs og sumarið inniheldur mun fleiri uppákomur
sem hægt er að hlakka til: Nýársdagur, bolludagur, páskarnir,
sumardagurinn fyrsti, 1. maí, 17. júní, gaypride, afmælið mitt,
menningarnótt og fleira og fleira. Að vísu er Formúlan ekki búin og
heldur ekki Landsbankadeildin.
Nú fer t.d. fram fótboltaleikur
hér á hlaðinu fyrir neðan himaríki, ÍA-HK. Staðan er 1-2 í hálfleik.
Femínistinn (erfðaprinsinn) lætur gengi liðsins okkar ekki skemma fyrir
sér spenninginn en hann hefur nám nú í vikunni eftir langt hlé, skólinn
hans verður settur í fyrramálið. Hvað með það þótt við spilum í 1.
deild eitt sumar ... ef við föllum? Ég fylgist óbeint með leiknum í
beinni lýsingu (skrifum) á mbl.is og þegar ég heyri öskur fer ég á
síðuna og sé innan tíðar hvað hefur gerst.
Vona að kvöldið verði ljúft og að nóttin færi ykkur góða drauma




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
