ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Vona að mér skjátlist ...

11:15 › 23. ágúst 2008

Venjulegur laugardagsmorgunn Hið ótrúlegasta henti hér í himnaríki
í morgun og hefur ekki gerst svo lengi sem elstu menn muna ... eða
vaknað fyrir kl. átta um helgi. Þrátt fyrir að augunum hafi verið lokað
mjög fast, sænginni vafið þéttar og heyrst hafi svæfandi veðurhvinur
sem kemur ef glugga hefur ekki verið lokað nógu vel var algjörlega
ómögulegt að sofna aftur. Þetta hefur ekki gerst í manna minnum og tel
ég undirmeðvitundina vera að þjálfa mig í helgarvakni fyrir
morgundaginn. Þótt ég forðist streitu af öllum mætti ætla ég að horfa á
leikinn.

DV Fyrir nokkrum dögum
stóð ég í Hálsaskógi og beið eftir strætó nr. 18 áleiðis að Ártúni
þaðan sem leiðin lá í Mosó og síðan á Skagann. Svona rosalega venjulegt
eitthvað. Þá kom ungur maður hlaupandi, líklega hræddur við að missa af
strætó sem brunaði ákveðinn úr Grafarholtinu og voru svona 15 sekúndur
í hann. Maðurinn, sem áttaði sig á kringumstæðunum á örskammri stund
sagði: „Æ, ég sem ætlaði að plata þig í spurningu dagsins í DV.“
„Skjóttu bara,“ sagði ég ótrúlega töffaralega, engin spurning of erfið
fyrir mig, fannst mér, vonaði þó heitt að hún tengdist ekki
stjórnmálum, það getur verið erfitt að vera ópólitískur og elska suma
sjálfstæðismenn, framsóknarmenn, samfylkingarmenn, vinstri græna ...
Þakklátur sagði maðurinn: „Já, ég veit alla vega að þú ert fimmtug, ha
ha ha,“ og ég dauðsá eftir tattúinu sem ég lét setja á ennið á mér á í
síðustu viku. Svo kom spurningin: „Í hvaða sæti lendum við Íslendingar
á Ólympíuleikunum í handbolta?“ Þá vorum við enn í átta liða úrslitum.
„Í öðru sæti, við fáum silfrið,“ sagði ég ótrúlega vongóð, maður peppar
sko strákana sína upp og hefur trú á því óhugsanlega. Síðan gerðist hið
ómögulega í gær og það er ekki séns á því að við lendum neðar en í öðru
sæti.

Reynir Í gærkvöldi fékk ég tölvupóst fá elskunni honum Reyni sem ég vann með fyrir mörgum árum og hefur greinilega lesið gáfuleg svör mín í DV: „Ég
vissi að þú vissir þetta. Sá allt í einu Íslendinga í úrslitum við
Frakka í gær og fór rólegur í sund í hádeginu í dag. Kristalskúlan þín
klikkar ekki.“
Nú veit ég að við verðum að sigra á morgun, annars
mun mér aldrei takast að fá Reyni Trausta eða Sigurjón M. Egilsson til
að trúa því að ég sé ekki völva Vikunnar. Þeir stríða mér reglulega á
því og ég urra á móti. Völvan er stundum vond við þá tvo í spádómum
sínum og mér myndi aldrei detta slíkt í hug við þessar elskur. Ef ég
þekki mig rétt myndi öllum ganga rosalega vel, ekkert vesen í
þjóðfélaginu, bara ótrúleg velgengni.

Samkvæmisleikur Þegar ég fékk gefins tarotspil
í gamla daga (1985) og var samstundis gerð að hirðspákonu vinahópsins
og alls frændgarðs hans lærði ég hratt og vel á spilin en var ekki með
nokkra einustu andlega hæfileika, er mjög jarðbundin og hef alltaf
litið á spádóma sem samkvæmisleik sem ekki ber að taka alvarlega og
nenni ekki fyrir nokkurn mun að snerta á spilum í dag, nema fyrir
stjörnuspá Vikunnar (held að mörg blöð þýði erlendar stjörnuspár, ekki
Vikan). Slík manneskja á ekki skilið að vera strítt á því að vera
völvan ... en ef við lendum í öðru sætinu þá verð ég í ljótum málum.


Hef því tvöfalda ástæðu til að rífa mig upp í fyrramálið og hvetja strákana og neyða þá með hugarorkunni til að sigra! Áfram Ísland!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?