ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Frænkueinelti á Útvarpi Sögu og smá bold

14:15 › 23. ágúst 2008



SímaatHalldór frændi hringdi í mig áðan úr númeri sem ég þekkti ekki. Hann var óvenjukurteis
og virðulegur í tali, sagðist reyndar fyrst hringja frá kynsjúkdómadeildinni og
spurði hvort ég væri ekki örugglega sitjandi, hann væri nefnilega með
niðurstöðurnar. Ég flissaði subbulega en datt samt ekki enn í hug að hann væri
að hringja í beinni útsendingu. Það kom í ljós þegar hann bauð mér óskalag og
vildi að ég veldi eitthvað gamalt, lummó og dásamlegt. Fyrsta dásemdin sem mér
datt í hug var Kveiktu ljós með
Blönduðum kvartett frá Siglufirði, ég hef lengi haldið upp á það, eða síðan ég
var lítil og hlustaði á það í Óskalögum sjúklinga. Þetta gæti Halldór svo sem hafa
vitað síðan hann var um tíma tæknimaður hjá mér á Aðalstöðinni í gamla daga. Og
viti menn, það lag beið undir nálinu hjá kvikindinu. Þetta gekk svo smurt að
það var eins og við hefðum æft það. Síðan fékk ég annað símtal sekúndum seinna:
„Gurrí, hvað dettur þér í hug þegar ég segi Dalvík?“
„620,“ svaraði ég um hæl, enda límist margt svona notadrjúgt eða ekki við
heilann á mér. Frænkueinelti, ekkert annað, en samt svolítið skondið!

JackieJackie er vöknuð úr kómanu og er full ... hefndarþorsta. Hún stingur upp á
því við Nick að hann reyni að ná tískufyrirtækinu af Forresterunum sem
skaðabætur fyrir gjörðir Stefaníu. Stefanía er í vondum málum fyrst Jackie kýs
að ljúga, skrýtið samt að hún skuli muna slysið svona greinilega, hún sem getur
varla sagt heila setningu. Þetta er bara fjárkúgun. Jackie heldur að þetta komi
Brooke endanlega til Nicks aftur. Nick sér fyrir sér að Jackie, mamma hans, stjórni
Forrester. Hvar er pabbi Nicks núna, Massimo, gamli ástmaður Stefaníu og blóðfaðir
Ridge? Hann myndi koma vitinu fyrir Nick og bjarga Stefaníu úr þessari klípu.

Svo er aumingja Phoebe, dóttir Taylors og Ridge, í hroðalegum vandræðum. Garðyrkjumaðurinn
sem öll vörn Taylors byggist á, þessi sem varð vitni að slysinu þegar Taylor ók
á Dörlu, notar aðstæðurnar til að reyna við aumingja stelpuna sem lætur ýmislegt
yfir sig ganga til að styggja ekki kvikindið og þiggur matarboð hans. Hvernig
fer þetta eiginlega?  



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?