Heilmikið fjör var í strætó á heimleiðinni. Megn kaupstaðarlykt var af síðasta
farþeganum sem kom inn í Mosó og sá var í glimrandi góðu skapi. Hann settist nálægt
Haffa bílstjóra og reyndi mikið að fá hann til að gera eitthvað spennandi. „Fullur
bíll af kjéddlíngum, sérðu möguleikana?“ sagði hann en Haffi lét ekkert trufla
einbeitinguna við aksturinn, sýndi bara manninum ótrúlega þolinmæði og aðrir
farþegar virtust skemmta sér vel. Sú sem sat fyrir aftan mig hvíslaði að mér: „Mikið
er annars gott að vera á lausu.“ Hún meinti, held ég, að það væri gott að eiga
ekki von á svona lítið edrú manni heim, frekar en að nú væri lag ... að veiða sér
einn góðglaðan. „Ertu til í að koma við hjá hesthúsinu?“ kallaði maðurinn
skömmu áður en við komum í göngin. „Já, já,“ sagði Haffi en ók samt beinustu
leið á Skagann. Ég hefði ekki þurft að bölva því að vera búin með strætóbókina,
en hún kláraðist í leið 15 á leið í Ártún í morgun, svo gaman var á leiðinni. Alltaf samt að vera með varabók!
Jæja, Brooke er búin að segja Nick upp sem pakkaði föggum sínum í pínulitla
tösku, rétti henni giftingarhringinn og fór. Tár á hvörmum beggja og næstum því
kveðjukoss. Brooke vill ekki leyfa systur sinni, Donnu, að segja Nick frá því
sem hún sá, eða að Stefanía hafi hrint Jackie, mömmu Nicks, niður stigann. Stefanía
sleit sig reyndar lausa af Jackie með þessum skelfilegu afleiðingum að Jackie
er næstum í kóma eftir fallið.
„Þú kynnir ekki
Beð Brooke fyrir Forrester lengur,“ segir Stefanía við Donnu og er búin að láta
Jason pakka niður dóti hennar. Stefanía veit sem satt er að Donna gæti haft
truflandi áhrif á vonandi tilvonandi enn eitt hjónaband Ridge og Brooke. Donna
er svo skotin í Ridge. Donna er auðmýkt og tautar bölbænir og við vitum (vegna
kristalskúlu minnar) að Donna á eftir að stela karlinum frá Stefaníu sjálfri,
honum Eric. Svaðaleg hefnd. Brooke eiginlega
segir Ridge upp líka en hann „veit“ að það er bara tímabundið á meðan
fyrrverandi tengdó, Jackie, mamma Nicks, liggur svona stórslösuð á sjúkrahúsinu.
P.s. Fékk algjört lost þegar Nágrannar voru sýndir á undan boldinu en skv. Eyjunni (eyjan.is) var þetta með vilja gert og auglýst í dagskránni. Það er ekki hægt að treysta á neitt í þessum heimi, hvað næst? Kannski Latibær á besta tíma á laugardagskvöldum? Úps, það er víst þannig.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
