Dormaði mestalla leiðina í bæinn og vaknaði ekki almennilega fyrr en í leið 18 í Árbænum. Þegar við þýðandinn gengum út spurði ég: „Hvaða bók varstu að lesa í strætó?“ „Bók um Kastró,“ svaraði hann. „Aha, hann átti einmitt afmæli núna 13. ágúst,“ sagði ég og bætti við: „líka Hittskokk heitinn.“ „Tengdamamma á sama afmælisdag og Hitler,“ sagði þýðandinn grobbinn, „og hún er rosalega montin af því.“ Aha, svo hún á afmæli 20. apríl,“ sagði ég greindarlega. Þýðandinn horfði hræðslulega á mig. Ég flýtti mér að segja: „Sko, Fjóla, gamla kisan mín, átti afmæli þennan dag og líka Gyða vinkona.“ „Hnuss,“ sagði þýðandinn, alveg búinn að sjá mig út. „Ég veit að þú ert með myndir af Hitler upp um alla veggi heima hjá þér!“ Þarna skildu leiðir áður en ég gat sagt honum að ég væri svo sannarlega með myndir af verstu ófétum sögunnar um allt hjá mér í himnaríki. Þýðandinn fór svo að þýða einhverja hallærislega íþróttaþætti fyrir Stöð 2 Sport og ég að skrifa einhverja snilld í hinum enda hússins og ég steingleymdi að spyrja hann út í barnabörnin; litlu, sætu hvolpana sem tíkin hans eignaðist um daginn. Ég átti samt alveg eftir að segja honum að Megas og Breiðholtshatarinn eiga báðir afmæli 7. apríl og ýmislegt annað merkilegt um afmælisdaga sem ég hef sankað að mér í gegnum tíðina.Það kemur sér vel að muna afmælisdaga. verst er bara þegar ég man ekki hvaða dagur er, þá klikka ég á því að hringja í vini og vandamenn á réttum degi. Úps, það er t.d. kominn 18. ágúst, æ, Þurí átti afmæli þann 15. ... Madonna þann 16. og ég gleymdi að hringja í þær.Jamms, megi dagurinn ykkar verða hreint ótrúlega dásamlegur, fullur af ævintýrum!
Blogg
Afmælisdagar ýmissa óféta
10:09 › 18. ágúst 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
