ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Bjöllupyntingar og fleira stöff

14:33 › 17. ágúst 2008

Dyrabjalla Dyrabjallan hringdi klukkan hálfníu
í morgun. Ég hoppaði í snarhasti framúr, greip sjúkrakassa, slökkvitæki
og hlýtt teppi og svaraði lafmóð: „Halló, hver er þetta?“ „Já, bla bla
læsti mig úti bla bla.“ sagði óskýr kvenmannsrödd í dyrasímanum. „Ha,“
hváði ég, enda heyrast yfirleitt ekki orðaskil í þessum dyrasíma.
„...læsti úti ...bla bla,“ endurtók röddin. Í uppgjöf minni ýtti ég
bara á opna. Ég þurfti sem betur fer ekki að byrja upp á nýtt
að sofa, eins og komið hefur fyrir ef prinsessusvefn minn er rofinn,
heldur nægðu þrír tímar til að ná þessu upp. Jamm, ævintýrin gerast
heldur betur hér í himnaríki. Ég sem hélt að ég ætti fullkomna nágranna
... nema þetta hafi verið glæpakvendi, sölukona eða trúboði sem nýtti
sér veikleika minn svona snemma morguns til að komast inn í
stigaganginn. Ég heyrði þó engin öskur í ástkærum grönnum mínum svo
líklega býr hún bara hér í húsinu en er örugglega aðkomumaður ...
hehehe. Himnaríki er alltaf læst svo ekki komist syndarar inn, nema þá
helst dauðasyndarar á borð við kaffi- og tertusjúklinga.

Síðasta uppgötvun Einsteins Mér tókst, þrátt fyrir mikla syfju í gærkvöldi, að ljúka bókinni Svartnætti. Hún var bara ansi skemmtileg og annar krimmi er kominn í lestur; Síðasta uppgötvun Einsteins.
Hún er eftir Mark Alpert og lofar ansi hreint góðu. Ætli ég fórni ekki
heilum Manchester-fótboltaleik kl. 15 í dag fyrir hana. Henni er af
einum gagnrýnanda líkt við Da Vinci lykilinn nema eðlisfræði í stað
myndlistar ... Aðrir gagnrífendur halda vart vatni og sá sem skrifaði
eina frægustu ævisögu Einsteins, Walter Isaacson, sagði: „Vá, Einstein
hefði orðið hrifinn af þessari bók!“ Ég reyni yfirleitt að láta svona
ummæli ekki hafa áhrif á mig, sumum fannst t.d. Da Vinci Code ekkert
sérstök og það gæti fælt þá frá ... Best að lesa og dæma bara sjálf.

Madonna Það er ansi haustlegt út að líta
hér við himnaríki, alskýjað og smá öldur og bara yndislegt. Það var
líka haustlegt veðrið í júní sl., minnir mig, þegar lægð heimsótti
okkur. Ég trúi öllu sem veðurguðinn minn, Nimbus, segir um vetur,
sumar, vor og haust og það er ekki komið haust, það er bara miður
ágúst. Sem minnir mig á að óska jafnöldru minni, Madonnu, innilega til
hamingju með afmælið í gær. Myndir af henni ófarðaðri hafa gengið um
bloggheima og fólk hefur talað um hvað hún sé ljót! Myndin er reyndar
ekki góð af henni, alls ekki, en mér finnst Madonna mjög flott kona.

Sjálf steingleymdi ég að hafa förðunaræfingu nokkrum dögum fyrir afmælið mitt og athuga hvort ég þyldi farða eftir sólbrunann agalega í júlí, þannig að ég Barn í afmælisgjöf sleppti
öllu pjatti. Á myndum finnst mér ég heldur rjóð og óinterísant en verra
hefði þó verið ef fésið hefði stokkbólgnað og afmælisgestir orðið
hræddir, hlaupið út aftur og þá hefði ég ekki fengið allar þessar
flottu gjafir.

Skartgripir, föt, dekurkrem, baðbombur, bækur, lampi,
blóm, listaverk, trefill með innbyggðri húfu, Radiohead-diskur,
grifflur, peningar, gjafakort og fleira og fleira, að ógleymdu barninu
þeirra Auðnu og Andrésar sem fæddist 10 mínútum áður en ég varð löglega
fimmtug.

Skyldi ég fá að velja nafnið á litlu dömuna?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?