ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Bjöllupyntingar, lestrarsýki, veðurguð og ófarðaðar jafnöldrur ...

14:17 › 17. ágúst 2008



DyrabjallaDyrabjallan hringdi klukkan hálfníu í morgun. Ég hoppaði í snarhasti framúr,
greip sjúkrakassa, slökkvitæki og hlýtt teppi og svaraði lafmóð: „Halló, hver
er þetta?“ „Já, bla bla læsti mig úti bla bla.“ sagði óskýr kvenmannsrödd í
dyrasímanum. „Ha,“ hváði ég, enda heyrast yfirleitt ekki orðaskil í þessum
dyrasíma. „...læsti úti ...bla bla,“ endurtók röddin. Í uppgjöf minni ýtti ég
bara á opna. Ég þurfti sem betur fer
ekki að byrja upp á nýtt að sofa, eins og komið hefur fyrir ef prinsessusvefn
minn er rofinn, heldur nægðu þrír tímar til að ná þessu upp. Jamm, ævintýrin
gerast heldur betur hér í himnaríki. Ég sem hélt að ég ætti fullkomna nágranna
... nema þetta hafi verið glæpakvendi, sölukona eða trúboði sem nýtti sér
veikleika minn svona snemma morguns til að komast inn í stigaganginn. Ég heyrði
þó engin öskur í ástkærum grönnum mínum svo líklega býr hún bara hér í húsinu en
er örugglega aðkomumaður ... hehehe. Himnaríki er alltaf læst svo ekki komist
syndarar inn, nema þá helst dauðasyndarar á borð við kaffi- og tertusjúklinga.

Síðasta uppgötvun EinsteinsMér tókst, þrátt fyrir mikla syfju í gærkvöldi, að ljúka bókinni Svartnætti. Hún var bara ansi skemmtileg
og annar krimmi er kominn í lestur; Síðasta
uppgötvun Einsteins
. Hún er eftir Mark Alpert og lofar ansi hreint góðu.
Ætli ég fórni ekki heilum Manchester-fótboltaleik kl. 15 í dag fyrir hana. Henni
er af einum gagnrýnanda líkt við Da Vinci lykilinn nema eðlisfræði í stað
myndlistar ... Aðrir gagnrífendur halda vart vatni og sá sem skrifaði eina
frægustu ævisögu Einsteins, Walter Isaacson, sagði: „Vá, Einstein hefði orðið
hrifinn af þessari bók!“ Ég reyni yfirleitt að láta svona ummæli ekki hafa áhrif
á mig, sumum fannst t.d. Da Vinci Code ekkert sérstök og það gæti fælt þá frá
... Best að lesa og dæma bara sjálf.

MadonnaÞað er ansi haustlegt út að líta hér við himnaríki, alskýjað og smá öldur og
bara yndislegt. Það var líka haustlegt veðrið í júní sl., minnir mig, þegar
lægð heimsótti okkur. Ég trúi öllu sem veðurguðinn minn, Nimbus, segir um
vetur, sumar, vor og haust og það er ekki komið haust, það er bara miður ágúst.
Sem minnir mig á að óska jafnöldru minni, Madonnu, innilega til hamingju með
afmælið í gær. Myndir af henni ófarðaðri hafa gengið um bloggheima og fólk
hefur talað um hvað hún sé ljót! Myndin er reyndar ekki góð af henni, alls ekki, en mér finnst Madonna mjög flott kona.

Sjálf steingleymdi ég að hafa förðunaræfingu nokkrum dögum fyrir afmælið mitt og
athuga hvort ég þyldi farða eftir sólbrunann agalega í júlí, þannig að ég
Barn í afmælisgjöfsleppti öllu pjatti. Á myndum finnst mér ég heldur rjóð og óinterísant en verra
hefði þó verið ef fésið hefði stokkbólgnað og afmælisgestir orðið hræddir,
hlaupið út aftur og þá hefði ég ekki fengið allar þessar flottu gjafir.
Skartgripir, föt, dekurkrem, baðbombur, bækur, lampi, blóm, listaverk, trefill
með innbyggðri húfu, Radiohead-diskur, grifflur, peningar, gjafakort og fleira
og fleira, að ógleymdu barninu þeirra Auðnu og Andrésar sem fæddist 10 mínútum áður
en ég varð löglega fimmtug. Skyldi ég fá að velja nafnið á litlu dömuna?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?