ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Ógreidda sætið, Connelly og Wallander ... örbold

12:12 › 16. ágúst 2008



Ógreiddur maðurÞað voru heilmargar
og stórmerkilegar
strætósögur sem áttu að fara á bloggið í gær en föstudagsannir
í vinnunni og svo syfja á föstudagskvöldum breytir bestu áætlunum um að blogga. Það sem
stendur upp úr er að nýr ógreiddur maður er kominn til sögunnar í leið 18 og
mun huggulegri (og eldri) en sá fyrri. Ég get víst ekki lengur talað um ógreidda
menn, heldur er ég viss um að sætið sem þeir hafa valið sér hafi eitthvað með
þetta að gera. Þessi nýi var í nákvæmlega sama sætinu og sá fyrri valdi sér
alltaf og þá er þetta bara orðið spurning um sætið, finnst mér.

Við vorum tvö í
leið 27 frá Akranesi
í gærmorgun með sömu bókina. Hinn, maður sem hélt áfram að
lesa standandi á stoppistöðinni í Mosó, var með nýja bók eftir Michael Connelly,
Svartnætti. Eftir að ég las Skáldið eftir hann er ég Blóðskuldhúkkt á bókunum
hans. Ef þið munið eftir bíómynd þar sem Clint Eastwood lék lögreglumann sem hafði
fengið hjartaáfall í eltingaleik við glæpamann. Kona var myrt og svo heppilega
vildi til að hún var í sama, sjaldgæfa blóðflokki og löggan og hann fékk hjarta
hennar. Aðrir líffæraþegar voru síðan myrtir síðar og löggan okkar, ekki beint
kominn til starfa aftur, leysti þó málið. Í myndinni var kunningi löggunnar látinn
vera sá seki en alls ekki í bókinni, sem heitir Blóðskuld. Já, þessi nýja bók fjallar um sömu lögguna
og kunninginn er enn kunningi, hvernig ætla kvikmyndagerðarmennirnir að láta
Eastwood redda þessu? Löggan er auk þess MIKLU yngri en sjötíu plús.

Wallander hinn sænskiVið erfðaprins steinsofnuðum síðan bæði yfir Wallander í gærkvöldi, ég
í leisígörl, hann í leisíboj, sem við geymum fyrir vinkonu mína. Algjör synd,
myndin lofaði svo góðu.

Núna kl. 13 á að byrja að innrétta íbúðir fyrir flóttafólkið þannig að ég
get ekki horft á boldskammt vikunnar. Ég hef þó séð sitt af hverju: Jackie fór í
stóra aðgerð á sjúkrahúsinu og óvinur Stefaníu, Donna, systir Brooke, sem varð
vitni að slagsmálum Jackiear og Steffí, hótar að segja lögreglunni að Steffí
hafi hrint Jackie. Nick er alveg brjálaður yfir þessu og rifjar upp góðar
stundir með móður sinni við undirleik lyftutónlistar, mjög átakanlegt. Lofa svo
að fylgjast voða vel með í komandi viku.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?