Mikið er gott að hversdagslífið sé hafið á nýjan leik. Ég loksins orðin sátt við að vera fimmtug og búin að ákveða að verða flottasta sextuga kona landsins eftir tíu ár. Þá kemst ég í Séð og heyrt og hlakka ég ekkert smá til að sjá fyrirsagnirnar: SEXUG EN svakaSÆT. SÓMAKVENDIÐ ORÐIÐ SEXTUGT. osfrv.
Hitti nokkrar ótrúlega skemmtilegar saumaklúbbskonur í gærkvöldi, verið er að undirbúa aukablað fyrir Vikuna og ég þurfti smá að taka myndir og svona .... Ein konan var að tala um fréttir sem Skagamenn, alla vega þeir sem vita, eru ekki mjög hressir yfir. Veit samt ekki hvort búið er að samþykkja það, ég á eftir að gúggla þetta, en alla vega þá skilst mér að það eigi að fara að brenna rusli í Sementsverksmiðjunni, alls kyns rusli og úrgangi, m.a. dýrahræjum. Sementsverksmiðjan er inni í miðjum bæ, kennileitið okkar, og þótt reykháfurinn sé hár þá langar mig að benda á að það er mikill misskilningur að það sé sífellt rok á Akranesi og allt fjúki á brott. Æ, kannski getum við bara verið þakklát fyrir að fá ekki geislavirkan úrgang. Sat í strætó við hliðina á elskulegri Skagakonu sem var að fara upp á Landspítala í geislameðferð. Ég varð eiginlega máttlaus úr reiði þegar hún rifjaði upp fyrir mér hvernig farið var með hana þegar hún var skorin upp við brjóstakrabba í báðum brjóstum fyrir nokkrum vikum. Mæting eldsnemma morguns á Kvennadeild LSH, skorin upp og fleygt svo út næsta morgun fárveikri alveg. Aldrei of illa farið með góðar konur. Hún reyndi að bera sig vel, eins og við gerum, Íslendingar, til að vera ekki
kallaðir aumingjar, og það voru greinilega mistök. Maðurinn hennar var að vinna til kvölds og hún þurfti að bíða allan daginn hjá ættingja í Reykjavík og svo var bílferðin heim á Skaga mjög kvalafull um kvöldið. Daginn fyrir aðgerðina átti hún að sprauta sig sjálf með blóðþynningarlyfi og sagt að hún hlyti að þekkja einhvern sem gæti sprautað hana ef legði ekki í það sjálf. Skjúsmí, fólk fer í háskóla til að læra að sprauta, held að sjúkraliðar megi ekki einu sinni sprauta, hvað þá fólk sem nýbúið er að fá fréttir um að það sé eitthvað að því. Hún fann loks skólahjúkku sem gerði það fyrir hana. Mjög fáir virðast vita af þessu og fólk rekur í rogastans þegar ég tala mig til hita um þetta.Er þetta sérlega slæm meðferð á kvenfólki eða gengur þetta yfir alla, karlmenn og börn? Þetta er ekki sniðugt. Mér var gert þetta 2004 og sat heima og grét af kvíða ... ég kveið ekki endilega fyrir sjálfri aðgerðinni sem ég var að fara í, heldur því að þurfa að sprauta mig. Þetta fannst mér vera aukaálag á erfiðum tíma þegar ég vissi ekki hvort ég væri með banvænan sjúkdóm eða ekki. Aldrei þurft á heilbrigðiskerfinu að halda, þannig séð, greitt mína skatta og skyldur og er ekki sátt við svona meðferð. Ef ég lendi í einhverju svona aftur ætla ég að nýta mér glufuna í lögum um að fá að fara til Danmerkur ef ég tel mig ekki fá nógu góða heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Ég veit að þetta sparar fé ... en þetta er afskaplega grimmdarlegur sparnaður við fólk sem er kannski hrætt og þess vegna ekki í stakk búið til að rífa kjaft yfir þessu.Svo kannski bold í kvöld. Veit bara að Stefanía og Jackie slógust á stigapalli en það er ávísun á stórslys. Jackie datt og liggur í kóma á sjúkrahúsi. Stefanía gerir allt sem hún getur til að koma Brooke frá Nick og í faðminn á Ridge, syni Stefaníu. Nick öskraði á Stefaníu sem notaði það sem átyllu til að benda Brooke, sem enn er löglega gift Nick, á skapsmunina ... Annars held ég að Brooke ætli að fara að velja á milli þeirra og kannski þurfa þeir að gangast undir próf hjá henni eða eitthvað.Vona að dagurinn ykkar verði léttur og ljúfur.
Blogg
Sjúkrahússjokk og geislavirkur úrgangur á Skagann?
12:53 › 14. ágúst 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
