ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Barn í afmælisgjöf

11:23 › 12. ágúst 2008



Jaðarsbrautin séð frá suðursvölumMörg skemmtileg símtöl í
morgun
og eitt það sniðugasta kom frá fæðingardeildinni. „Hæ, Gurrí, ég er að
föndra afmælisgjöf handa þér!“ Hehhehehe, hló ég og skildi ekkert hvað Auðna átti
við. En það kom fljótlega í ljós, hún ætlar að „gefa mér“ barn í afmælisgjöf,
splunkunýtt og sætt. Búið er að setja hana af stað og þau Andrés stefna á að
erfinginn fæðist kl. 19.54 svo það verði nákvæmlega 50 ár á milli okkar. Við
getum svo sameinað veislurnar þegar ég verð 100 ára og krúttmolinn fimmtugur. Mikið
á mér eftir að finnast hann ungur og barnalegur þá.

Ég vona að allir þeir sem ég náði ekki í eða gleymdi að minna á afmælið láti nú
sjá sig í dag þrátt fyrir það. Samt er engin skyldumæting. Ég móðgast ekki út í neinn sem kemur ekki, sjálf er ég frekar partífælin.

 

Njótið dagsins, elskurnar! Það ætla ég sko að gera.

P.s. Myndin sýnir afstöðu himnaríkis við Sementsverksmiðuna ... eða þannig, eða hvar Jaðarsbrautin liggur. Myndin er tekin af suðursvölunum mínum. Inngangurinn er norðanmegin. Flóð verður kl. 15.59 við Langasandinn í dag ... svona fyrir þá sem vilja hafa allt á hreinu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?