Nýklippt og ótrúlega sæt, enn rúmlega fertug fór ég í bakaríið og pantaði áletrunina á
afmælistertuna. Það verður heilmikið lesefni á henni og að þessu sinni geri ég
ekkert grín að sjálfri mér, hvorki aldri mínum, sénsleysi né öðru.
Kíkti aðeins á Þröst bloggvin líka sem ætlar að redda afmælisjakkanum fyrir
mig, þessi elska, en ekki koma í afmælið, allt of
mikið að gera. Það verða
nokkur afföll hjá ættingjum mínum en ég verð bara að treysta á að vinirnir klikki
ekki ... þrátt fyrir skammarlegt boðskortaleysi sem ég kenni villtum önnum um.
Sendi SMS til nokkurra í gærkvöldi, vona bara að fólk sé enn með sömu gemsanúmer
og fyrir sjö árum ... Held að ég hafi aldrei verið svona á allra síðustu stundu
áður. Orðin of róleg í tíðinni kannski, enda er þetta 21 árið í röð sem ég held upp á stórafmælið
mitt.

Með færslunni eru nokkrar myndir sem sýna aðkomuna fyrir þá sem aldrei hafa í himnaríki komið. Heill hellingur er af bílastæðum sunnanmegin, eða Langasandsmegin, en inngangurinn er Höfðabrautarmegin, ekið inn frá Garðabraut og þar eru eflaust fjögur til fimm laus stæði, fyrstir koma, fyrstir fá. Vona að ykkur gangi vel að finna þetta, ekki gengur að lenda í helvíti. Maðurinn á bílastæðamyndinni hérna neðst heitir Siggi og er samstarfsmaður minn. Hann dáðist einmitt svo að einkabílastæðinu mínu hérna fyrir neðan, sá varla öldurnar sem voru stórfenglegar þennan dag og náðust ekki almennilega á mynd.
Jamm, best að halda áfram við undirbúninginn. Njótið eftirmiðdagsins og
eigið yndislegt kvöld.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
