ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Skilaboð frá almættinu ...

11:53 › 10. ágúst 2008



Ég hef verið full ...blindfull kvíða yfir því að verða fimmtug, Það var ekkert mál
að verða þrítug, ég skildi ekki þá vini og kunningja sem kviðu og engdust yfir
því. Þegar ég varð fertug fannst mér það hreinlega kúl ... og bara enginn aldur
en mér var kippt harkalega niður á jörðina með það nokkuð fljótt algjörlega óviðbúinni.
Ég lærði fullt af nýjum orðum, eins og kóf, breytingaskeið, miðaldra og svona.

Fertugt glæsikvendiKrabbameinsfélagið: Kona „á þínum
aldri“
þarf að mæta í brjóstamyndatöku ....

Mamma: Þú ert komin úr barneign, ekki séns að þú eignist Bryndísi litlu úr þessu!“

Hárgreiðslukonan: „Ha, engin grá hár og þú samt orðin fertug, vá!“

Konurnar í vinnunni: „Ertu með höfuðverk? Það hlýtur að vera
breytingaskeiðið! Við erum orðnar svo miðaldra.“

Vinkona, 12 árum eldri: (þegar ég hafði skokkað til hennar í miklum hita:
„Ertu með kóf, svona eins og ég?“

Það sem líklega bjargaði mér var að sjálf Madonna er fjórum dögum yngri en ég og alltaf þegar ég fann fyrir hrumleika minnti ég mig á það. Þá var þessi jafnaldra mín að hlaða niður börnum, halda tónleika um heiminn og allt í þeim dúr.

Það var þó ekki fyrr en ég sá í fréttunum í gær að ég fattaði að ég hefði fengið skilaboð frá almættinu. Afmælisdagurinn minn, 12. ágúst, hefur
verið valinn alþjóðlegur dagur UNGA FÓLKSINS. Ég er vissulega gömul miðað við tvítuga krakka, eldgömul alveg, en ég
er ung, algjör skvísa, miðað við áttræða karla sem myndu selja sálina í sér til að
verða ungir fimmtugir gæjar aftur.

Það var heilmikið
glápt á mig
á Megadeth-tónleikunum á Nasa um árið, enda orðin fertug, og við vinkonurnar vorum
spurðar: „Eruð þið hérna með börnunum ykkar?“ Við svöruðum (næstum því)
sannleikanum samkvæmt: „Nei, þau eru heima að hlusta á Celine Dion.“ Mér var á ákveðinn
hátt komið í skilning um að minn tími væri liðinn og t.d. önnur áhugamál en rapptónlist
væru hentugri fyrir mig. Ég var ekki ein af þessum fertugu sem reyndi að klæða
sig eins og unglingur en skildi ekki þessa áráttu að það þyrfti að ýta mér svolítið
til hliðar bara af því að ég væri fertug. Af hverju var ég ekki heima að búa
til barnabörn?

Hvað ætli gerist á þriðjudaginn kl. 19.54 þegar ég verð á sekúndunni fimmtug? Hvað
hefur mér ekki verið sagt? Tók ég aldurssjokkið út um fertugt eða bíður mín fólk
í röðum til að segja mér að nú sé tími til að fara að stunda garðyrkju? Ég hata
garðyrkju.

Jamm, þetta er nú kannski meira í gríni en alvöru en ég var vissulega
stundum hissa yfir því hvað sumt fólk leyfði sér að segja við mig eftir að ég
varð fertug því að ég fann harla lítinn mun á mér andlega sem líkamlega frá því
að vera 35 ára. Í dag finnst mér ég t.d. ekki árinu eldri en svona 47 ½.

 

Hitti bloggvin
á föstudaginn
, elskuna
hana Láru Hönnu ofurbloggara sem var greinilega að skila af sér þýðingum.
Þýðingadeildin er í vinnunni minni í Hálsaskógi og stundum mæta þangað algjör
sellebrittís af íþróttadeild Stöðvar 2 og svo auðvitað þýðingardeildinni. Lára Hanna gaf mér
óvænta afmælisgjöf á leiðinni út, eða handritið að þýðingu sinni á boldinu þann
12. ágúst. Ég mun án efa missa af þættinum en nú get ég bara lesið þýðinguna og
giskað á hverjir eru að fara að byrja saman, hverjir eru óléttir og svona.
Meira bold í kvöld þegar búið er að taka himnaríki í gegn. Nú er það bara
kaffffffi!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?