Veit ekki hvað gerðist ... en tekjublað Mannlífs er komið út!!! Snilld bara. Aðgangur að tekjum bloggara er ekki jafnauðveldur og í fyrra svo ég verð bara að handpikka út og get ekki verið þekkt fyrir að birta ekki alla vega nokkur nöfn hér á blogginu mínu. Veit að það hringdu nokkrir alveg trylltir og brjálaðir eftir tekjublaðið í fyrra. M.a. flugmaður sem kom út tekjulægri en hann var í raun, held að það hafi verið innsláttarvilla. Hann öskraði: „Ég kem út eins og ég sé með laun eins og fokkings flugfreyja!“ (GH færði í stílinn)Tölurnar tákna mánaðartekjur viðkomandi!!!! Bjarni Ármannsson, úr Skagaliði Útsvars, 44.826.869 Reynir Traustason, ritstjóri DV, 1.097.356Ingvi Hrafn Jónsson sjónvarpsmaður 86.805 Björgólfur Guðmundsson bankaeigandi 1.772.290Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður 5.317.586Júlíus Valsson bloggari 1.410.618Guðni Ágústsson alþingismaður 1.124.235Björn Bjarnason, bloggari m. meiru, 1.078.594Sigríður Arnardóttir sjónvarpskona 620.214Kolbrún Bergþórsdóttir blaðakona 568.100Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, ritstjóri 24 stunda, 555.276Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður 722.721Elín Hirst fréttastjóri 852.041Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, ritstjóri Skessuhorns, 128.070Guðfinna Bjarnadóttir alþingiskona 3.314.648Jafet Ólafsson fjárfestir 114.377Bubbi Morthens, bloggari m. meiru, 477.610
Viðbót – áríðandi:
Lítil kisa úr
Vesturbænum, Bárugötu 8, týndist sl. laugardag frá heimili sínu. Hún er innikisa
og hafa eigendur hennar miklar áhyggjur af henni. Hún er af tegundinni
Colourpoint-persi og er með blá augu.
Ef þið sjáið þessa kisu vinsamlega
hringið í síma 856 5031 (Benedikta og Egill). Fundarlaun í boði.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
