Í dag á Dean Koontz rithöfundur afmæli og ekki bara hann, heldur einnig Elín
Arnar, ritstjórinn minn. Til hamingju með daginn bæði tvö. Svo er þetta líka dánardagur
pabba en hann dó þennan dag 2001, sjötugur að aldri.
Snemma í janúar 2001 dreymdi mig að ég missti fjórar tennur. Draumspök
vinkona mín hristi höfuðið og sagði að þetta táknaði yfirleitt ástvinamissi. Hálfum mánuði
seinna dó sonur vinafólks míns, yndislegur ungur maður, ég syrgði hann
ofboðslega mikið og geri enn. Um sumarið missti móðursystir minn manninn sinn
og skömmu síðar dó pabbi. Ég var löngu búin að gleyma þessum draumi mínum, enda
hef ég talið drauma frekar vera undirmeðvitundina að verki
frekar en að hafa forspárgildi. Rétt fyrir jólin þetta ár varð þrítugur frændi
minn bráðkvaddur, ungur og efnilegur læknir sem dó frá konu og ungri dóttur. Í
jarðarförinni hans mundi ég svo drauminn og ráðningu vinkonu minnar á honum.
Þegar 11.
september-hörmungarnar dundu yfir gat ég ekki gert að því að hugsa að þarna
hefði pabbi misst af miklu, hann var svo mikill fréttafíkill. Ein fyrsta bernskuminningin
mín var þegar hann sat stjarfur fyrir framan útvarpstækið og sussaði á mig og
systkini mín, Kennedy hefði nefnilega verið myrtur.
Heilsan er öll að koma til en ég er enn með brunablöðrur á kinnunum.
Þær fara minnkandi og ég hef haft þær marineraðar í góða jurtasmyrslinu frá Móu. Það
dregur alveg úr sviða og kláða. Líklega hefur húðin verið ofurviðkvæm eftir förðunina
á mánudaginn og algjör klikkun að fara í sólbað á svölunum. Eins gott að ég keypti það um daginn þegar ég fór í Heilsuhúsið, annars væri ég í slæmum málum.

Nick ákvað að koma Brooke sinni á óvart, pantaði prest og þau giftu sig
aftur ... ókei, endurnýjuðu heitin. Sama kvöld segir Bridget honum að hún sé ófrísk
eftir hann. Þau ætla að segja Brooke þetta á morgun. Taylor fær viðurkenningu
frá AA, 60 daga edrúmerkið. Hún og fyrrum mágur hennar, sorgmæddi ekkillinn, Thorne,
virðast voða happí saman, enda veit hann ekki að hún ók af slysni á Dörlu og
drap hana.
Dularfulli
garðyrkjumaðurinn sem Phoebe næstum skar hendina af fyrir slysni
býr enn á
heimili hennar og Taylor, mömmu hennar.
Þar býr líka Hector slökkiviliðsmaður,
eftir að hann blindaðist í brunanum, og hann hefur grun um að garðyrkjumaðurinn sé eitthvað dúbíus.
Ef hann bara vissi að nú er hann með Phoebe í bíltúr og segir henni að hann
hafi verið vitni að dauða Dörlu. Hann hafi verið dularfulli, skeggjaði gaurinn
sem næstum hræddi úr henni líftóruna þegar hann bauð fram hjálp sína við að
skipta um dekk. Phoebe er dauðhrædd!




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
