ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Lokuð Hvalfjarðargöng

00:00 › 9. júlí 2008

HvalfjarðargönginLilja strætóvinkona hringdi rétt áðan og var stödd í langri biðröð við Hvalfjarðargöngin. Hún er á bílnum sínum, aldrei þessu vant, og var forvitin um hvað væri í gangi. Ekkert kom um þetta í útvarpinu. Hún vonaði að ég væri heima svo að ég gæti sagt henni það. Á mbl.is var ekkert um lokunina en á visir.is var frétt um að fellihýsi hefði dottið af bíl í göngunum og farið utan í vegg. Þegar símtalinu var að ljúka kom aðvífandi maður frá Speli og sagði að það væri klukkutíma bið eftir að göngin yrðu opnuð aftur. Lilja ætlar að keyra Hvalfjörðinn. Þeir bloggvinir mínir af Skaganum sem enn eru í bænum og sjá þetta ... akið hægt. Hvað með strætó? Verður honum hleypt í gegn? Þetta setur annars alla áætlun dagsins algjörlega úr skorðum, 17.45 vagninn er nýfarinn frá Mosó. Jamm, alltaf gerist eitthvað spennandi þegar ég er heima!Skúbb Moggabloggsins var í boði himnaríkis!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?