Ljóst er að myndatakan í gær hafði verulega slæm áhrif á heilsu himnaríkisfrúar. Heilsu OG útlit. Við heimkomu í gær var
farðinn hreinsaður af (með blautum þvottapoka) og græðandi og gott krem sett
yfir. Síðan var sest út á svalir í hálftíma. Í morgun var síðan andlitið þrútið
og rautt, sérstaklega vinstri kinnin, og ekki nóg með það, heldur kominn hósti,
hálsbólga og almennur slappleiki. Það verður því engin Betuheimsókn í dag,
maður smitar ekki sjúkraþjálfarann sinn af bólginni kinn og kvefi.
Í öllum látunum vegna flóttakvennanna á dögunum ákvað ég að nöldra ekkert meira, heldur
gera eitthvað í málunum og er nú orðin virðulegur sjálfboðaliði hjá Rauða
krossinum. Í gær skutlaði erfðaprinsinn mér í húsnæði sem RK hefur til umráða en nú hefur verið biðlað til Skagamanna um að gefa húsgögn, húsmuni og fatnað.
Ekki var að spyrja að þessum elskum, strax í gærkvöldi voru komnir margir
fatapokar, húsgögn og ýmsir heimilismunir. Það verður opið alla mánudaga og
fimmtudaga frá 18-21, nú í júlí alla vega, á Vallholti 1, þar sem bifreiðaskoðun var einu sinni,
þarna við hliðina á bifreiðaverkstæði Hjalta og skáhallt á móti Fiskisögu,
fiskbúðinni frábæru. Næsta vakt mín verður á fimmtudaginn í næstu viku og ég
hlakka helling til, enda var þarna mjög skemmtilegt fólk að vinna, m.a.
tilvonandi dönskukennari erfðaprinsins.
Jæja, farin upp í rúm aftur, best að reyna að sofa þetta úr sér.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
