ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Hjartalæknir í Skagastrætó - ný lífsreynslusögubók komin út!

00:00 › 4. júlí 2008

StrætóLoksins mætti ég með galopin augu í strætó í morgun eftir langþráðan mátulega langan nætursvefn. Bjóst alveg eins við að splunkunýi bílstjórinn úr móðu undanfarinna morgna væri jafnvel kona eða þaðan af verra ... eftir gott frí hef ég ekki verið nema skugginn af sjálfri mér eftir að þurfa að vakna uppúr sjö á morgnana, les lengi frameftir og sýni vítavert kæruleysi í því að reyna að fá almennilegan nætursvefn. Bílstjórinn reyndist alveg vera hinn skemmtilegasti karl, eins og mig minnti, og sagðist hafa sett met í morgun ... eða ekið með heila fjóra farþega frá Mosó til Akraness í fyrstu ferð. Helmingur farþega voru víst læknishjón, karlinn hjartasérfræðingur og á helgarvakt á sjúkrahúsinu. Það datt óvart af mér andlitið eitt augnablik ... læknir í strætó?? En hví ekki? Er ég ekki virðulegur blaðamaður, meira að segja aðstoðarritstjóri? Hví kýs ég strætó? Ja, ekki er það af neinum lúðahætti, ég þori bara ekki að keyra bíl ... Læknirinn tók víst rándýrar endurbætur á stofu sinni framyfir að eiga bíl ... og vá hvað ég skil hann. Öruggur með sig, þarf ekki stöðutákn á borð við jeppa. Er ekki líka svolítið flott að aka um í stórum, dýrum bíl og hafa einkabílstjóra? Yfirleitt eru ansi fáir með fyrstu ferð á Skagann á morgnana á meðan fara tvær rútur af fólki í hina áttina, eða til Reykjavíkur. Notkun hefur greinilega aukist eftir skelfilegar bensínhækkanir síðustu vikna því það nægði að hafa bara einn vagn í fyrstu ferð allt sumarið í fyrra. Ég fór meira að segja stundum heim á Skagann með rútukálfi sl. sumar. Engin Elín kom upp í strætó í Mosó í morgun, ég sat með þrumusvip á andlitinu til að enginn þyrði að setjast hjá mér (eftir sundurstíun á okkur Elínu undanfarna morgna). Þegar mér loks tókst að taka frá sæti þá klikkar hún ...Indverskur forritariÓgreiddi maðurinn sat í sama sætinu og í gær og breiddi svo vel úr sér að ég sá að hann var í brúnum, mjög illa burstuðum skóm. Sumir þjást af hræðslu við kóngulær eða töluna 13 og aðrir óttast skuldbindingu, þessi ungi maður gæti verið burstafælinn (hárbursta-, skóbursta- osfrv.) Svo var allt gert til að rugla mig og þýðandann í ríminu, nú fór hluti Indverjanna út á gamla staðnum og stærri hluti út um leið og við, nema sá ógreiddi kom út um leið og við, eins og í gær. Einhvern morguninn ætla ég ekki í vinnuna, heldur elta samferðamennina, bara til að geta sagt ykkur hvert liðið mitt fer. Við verðum alla vega að komast að því hvar sá ógreiddi vinnur, ekki satt? Minnir að Indverjarnir (karlar plús ein kona) séu hjá Glitni við tölvuforritun.Bókin í fyrraNú var að koma út bókin 50 íslenskar lífsreynslusögur, fallega túrkísblá að lit og inniheldur 15 djúsí splunkunýjar lífsreynslusögur og 35 eldri sögur sem hafa birst í Vikunni áður. Vá, það var svo gaman að rifja þessar sögur upp. Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Mannlífs, sá mig handleika fyrsta eintakið (ógurlega montna, eins og Þingeyinga aftur í ættir er siður) og sagði vingjarnlega: „Ég veit að þú samdir allar þessar sögur sjálf ... og þar að auki ertu völva Vikunnar!“ Ég vissi ekki hvort ég ætti að vera upp með mér yfir þessu áliti hans eða móðguð fyrir mína hönd, völvunnar og Völvublaðið fyrir 2007fólksins sem hefur sagt mér sögur sínar ... Ég hallast að því að þetta teljist hrós og SME álíti mig einstaklega hugmyndaríka, fallega, gáfaða og að auki með miðilshæfileika. Hver annar en miðill (völvan okkar) hefði getað sagt fyrir um lætin í borginni og að borgarstjórin myndi springa, hún segir reyndar að ríkisstjórnin springi líka ... Eina sem mér finnst ólíklegt að rætist hjá völvunni er að ÍA berjist um fyrsta sætið við Val í Landsbankadeild karla! Hún hlýtur að hafa lesið hugsanir mínar og tekið inn óskhyggjuna þegar ég tók viðtalið við hana ... ég held með ÍA og finnst Gaui Þórðar ekki fram úr hófi skapmikill, bara eðlilegur fótboltaþjálfari! Hverjum er ekki illa við dómara? Hér að ofan sést mynd af lífsreynslusögubókinni sem kom út í fyrra. Þessi nýja er næstum alveg eins í útliti ... nema túrkísblá!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?