ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Njósnir í morgunsárið

13:47 › 31. júlí 2008

Skattstofan við Stillholt Þá er lokið árlegri njósnaferð á skattstofuna fyrir skattablað Mannlífs. Njósnað var um aðila á borð við sýslumenn, lækna, presta og útgerðarmenn/-konur.

Mikið
var gaman að sitja á skattstofunni í morgun, starfsfólkið þar er
gjörsamlega frábært! Ég hef reyndar líka góða reynslu af fólkinu hjá
skattstofunni í Reykjavík, held að það skipti máli hvort maður kemur á
opinberar stofnanir kurteis í fasi ... eða í brjáluðu skapi og með
attitjúd því maður búist við slæmri afgreiðslu.

Skattskráin Ungir Sjálfstæðismenn, sem hata þessar njósnir,
ættu að vera ánægðir með hvað þetta er gert erfitt fyrir okkur
njósnarana, þetta er engin bók sem hægt er að fletta venjulega, heldur
götuð blöð í möppu og nöfnin á vinstri síðu snúa öfugt við nöfnin á
þeirra hægri, það þarf að snúa möppunni fram og til baka með
tilheyrandi bakverkjum og vöðvabólgu. Mjög leiðinlegt er t.d. að skoða
myndaalbúm sem þannig er raðað í.

Á skattstofunni Keppinautur minn frá hinu skattablaðinu
sat á móti mér við lítið sófaborð og skráði laumulega úr hinni
skattaskránni sem lá frammi. Við reyndum að láta hatrið ekki fara úr
böndunum, enda erfitt að bresta í slagsmál og vera með kjaft þar sem
við erum gamlir skólafélagar. Þótt við séum fædd sama ár er hann orðinn
fimmtugur og hálfu ári betur ... og maður á að vera góður við gamalt
fólk.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?