ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Guðni Ág. öskureiður og Thorne trylltur - brjálað bold

19:01 › 30. júlí 2008

Sverrir GuðniJa, hérna. Sverri Stormsker tókst að gera Guðna Ágústsson, fv. landbúnaðarráðherra, svo brjálaðan í
útvarpsviðtali í dag að hann rauk á dyr. Sjá: http://dv.is/frettir/2008/7/30/gudni-rauk-dyr-hja-stormsker/ 

„Þú myrtir konuna
mína,
“ segir Thorne alveg sjokkeraður í boldinu. „Og ég sem bað þín! Þú laugst
að mér og dóttur minni.“ Thorne er að sleppa sér. „Kennirðu Dörlu um þetta?“
öskrar hann svo þegar Taylor segir að Darla hafi dottið fyrir bílinn (sem er satt). Stefanía
fréttir af þessu og ætlar að drífa sig upp í Big Bear, sumarhús Darla og Thornefjölskyldunnar, þar sem Thorne hafði ætlað sér að eiga rómantíska stund með Taylor.
Þá hringir dyrabjallan, Baker fulltrúi kominn í heimsókn. Hann segist vita að Taylor
hafi setið undir stýri og heimtar að þau játi öll með tölu!

Talor og Hector slökkviliðsGeðlæknirinn
geðþekki segir Thorne

hvað henni líði illa og hún sjái í sífellu fyrir sér óttaslegið
andlit Dörlu á framrúðunni. Eins og það sé þetta sem Thorne þarf helst
að heyra þessa dagana. Taylor nuddar meira salti í sárin ... „nú sér
Darla litlu stúlkuna sína
aldrei vaxa upp. Ó, andlitið á henni á framrúðunni hjá mér. Ég elska
þig og
hvert sem ég fer mun ég biðja fyrir þér. Þú verður í hjarta mínu til
eilífðar!“
Samt vitum við áhorfendur að hún á eftir að deita Nick og verða ófrísk
eftir
hann með eggi Brooke, hún á líka eftir að deita son Brooke, hann Rick.
Síðan
hringir hún í fulltrúann, þar sem hann er staddur hjá hinum sem vissu,
og játar allt.
Hann sendir samstundis löggubíl eftir henni.

Baker fulltrúiNú er Taylor komin í varðhald og lúmskur Baker fulltrúi lætur hana
segja frá öllum sem vissu af þessu; dótturinni Phoebe, Hector slökkviliðsmanni
og Stefaníu sem teljast samsek og geta lent í fangelsi. Þegar hún af heimsku
sinni er nýbúin að „skvíla“ þessu kemur Ridge, fyrrum eiginmaður hennar og
pabbi Tómasar og tvíburanna, og bannar henni að tala meira fyrr en lögfræðingur
er mættur.

PhoebePhoebe fer til Thorne, föðurbróður síns, og biður hann um að fyrirgefa þeim,
aðallega Taylor, mömmu hennar. Thorne segist ekki trúa því að Darla hafi dottið
fyrir bílinn, það sé léleg afsökun. Gullfalleg lyftutónlist ómar svo eftir að
hann er orðinn einn. Hugsa sér, tvöföld sorg. Fyrst deyr konan hans og svo örfáum
vikum síðar, þegar hann er orðinn ástfanginn af Taylor, þarf hún endilega að vera
ökumaðurinn sem keyrði á Dörlu. Aumingja Thorne. Hvernig fer þetta?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?