ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Ómannúðleg meðferð á flóttamanni! Hvað er í gangi á Íslandi?

00:00 › 3. júlí 2008

Ekki hefur farið nógu hátt sú ákvörðun íslenskra stjórnvalda að reka nýbakaðan föður úr landi og aðskilja hann og fjölskyldu hans, konu og 3 vikna son. Hann hafði sótt um hæli á Íslandi sem pólitískur flóttamaður og ekki fengið svar við því, heldur var hann sóttur á heimili sitt í gær, skellt í fangelsi og sendur heim með flugvél í morgun. Mennirnir sem hlupu út á flugbrautina gerðu það til að mótmæla þessum ómannlega verknaði yfirvalda! Þó svo maðurinn hafi millilent í Frakklandi, þurfti þá endilega að nýta glufuna í lögunum til að losna við hann og mögulega senda hann út í í opinn dauðann? Hvaða firring er í gangi hjá okkur? kenía Sjá nýjustu færslu jennýjar Önnu: www.jenfo.blog.is)Ég er búin að senda tölvupóst til Ingibjargar Sólrúnar og Björns Bjarnasonar og hefði eflaust gert miklu fyrr en fréttaflutningur hefði ekki verið svona lítill af þessu máli. Mér er stórlega ofboðið, ég get ekki trúað því að við gerum svona!Úr bloggi Jennýjar, hlekkir og fleira:Hér er fyrri færslan mín um málið og hér er umfjöllun RÚV um manninn í gærkvöldi.  Sjáið líka hér.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?