Ég kíkti á Netið nýlega og fann nokkrar ágætis móðganir
í viðbót við þær sem ég þýddi upp úr skemmtilegu móðganabókinni sem ég
fékk í jólagjöf um árið. Svo eru tveir gamlir og góðir Bjöggar þarna
líka.
Það er fínt að fá útrás hérna á blogginu
fyrir andstyggilegheitin, ég er frekar lítið fyrir að móðga fólk svona
dags daglega, a.m.k. viljandi. Einu sinni sagði ég mjög krúttlega við
kunningja minn sem ég hafði ekki hitt í óratíma, gamlan skólafélaga úr
Vörðuskóla: „Hvað er svona fallegur maður eins og þú að gera á svona
stað eins og þessum?“ Við vorum á Gauk á Stöng eða líklega á Dubliner,
já, þetta gerðist á Dubliner ... Maðurinn varð alveg brjálaður og rauk
fussandi og sveiandi á brott og ég skil ekki enn hvers vegna. Alla vega
tókst mér að móðga þessa elsku alveg óvart. Svo móðgaði ég líka mann
sem horfði hrifinn á mig og sagði: „Hilda mín, ert þetta þú?“ Þegar ég
sagðist vera systir hennar varð hann sár og móðgaður og sagði að ég
vildi bara ekki þekkja hann. Hilda hefur lent í þessu sama þegar
fallegir menn halda að hún sé ég og sært marga aðdáendur mína með því
að vera ekki ég ...
Hér koma spælingarnar:
„Ég myndi spyrja þig um aldur þinn en geri mér alveg ljóst að þú kannt ekki að telja svo hátt.“
„Ég myndi vissulega reyna að móðga þig en þú myndir bara ekki skilja það.“
„Ég er ljóshærð/ur, hvaða afsökun hefur þú?“
„Mikið gleður það mig að þú látir ekki menntun þína flækjast fyrir fávisku þinni.“
„Hvern kalla ég heimskan? Góð spurning, ég veit það ekki. Hvað heitir þú?“
„Foreldrar þínir eru systkini, er það ekki?“
„Lærðu af mistökum foreldra þinna og láttu taka þig úr sambandi!“
„Hey, varst þú ekki krakkinn á getnaðarvarnaplakatinu?“
„Ég er viss um að gelt móður þinnar er verra en bit hennar.“
„Hæ, ég er manneskja, hvað ert þú?“
„Feit, þú ert ekki feit, þú ert bara ... ó, fjandinn, ókei, þú ert feit, reyndar alveg rosalega feit!“
„Hún er svo feit að bíllinn hennar er eini bíllinn í bænum með slitför.“
„Hey, ég man eftir þér síðan þú varst aðeins með einn maga.“
„Ég sé að þú hefur verið svo ánægð/ur með hökuna á þér að þú hefur bætt tveimur við.“
„Þú ert svo feit/ur að þegar þú hoppar upp þá festist þú.“
Og svo úr pikköpplínudeildinni:
Maður: „Ég kannast svo við þig. Höfum við ekki hist áður?“
Kona: „Jú, ég vinn sem læknir á kynsjúkdómadeildinni.“
Maður: „Ég get uppfyllt alla kynóra þína!“
Kona: „Þú getur sem sagt reddað mér asna, St. Bernharðshundi og grilláhöldum?“
Tveir gamlir og góðir úr Bjöggadeildinni:
Björgvin Halldórsson, sjónvarpsþulur og söngvari,
er þekktur fyrir nístandi athugasemdir sem geta verið afar fyndnar ...
fyrir þá sem lenda ekki í þeim. Þeir sem þekkja kauða segja að hann sé
ekki að reyna að særa neinn heldur frekar að ná viðkomandi niður á
jörðina. Þegar menn eru orðnir aðeins of stórir fyrir jakkafötin sín
minnir Björgvin þá á hversdagsleikann og leiðir þeim skýrt fyrir sjónir
að þeir séu engir stórkarlar. Einn morguninn stóð hann fyrir utan Stöð
2 og var að tala við samstarfsmann sinn þegar eitthvert „fóstur“ í
jakkafötum kom aðvífandi á sjö milljón króna jeppanum sínum sem hann
hafði aldrei ekið lengra út úr bænum en í Garðabæ. Hann bisaði lengi
við að troða jeppanum inn á stæði og Björgvin fylgdist grannt með.
Síðan steig „fóstrið“ út úr bílnum, læsti honum með fjarstýringu,
hagræddi gemsunum tveimur í brjóstvasanum og gekk í áttina til þeirra.
Hann ætlaði að heilsa en Björgvin varð fyrri til, benti með þumlinum á
jeppann og spurði: „Lýsing eða Glitnir?“
Vinsæll söngvari hafði keypt sér flottustu
jakkaföt poppsögunnar og fór í þeim á Hótel Ísland þar sem Björgvin var
með stórsýningu í gangi, sýningu sem hafði rúllað í tvö ár fyrir fullu
húsi. Söngvarinn ákvað að heilsa upp á Björgvin baksviðs og vakti þar
mikla athygli fyrir flottu fötin. Kannski líkaði Björgvini ekki öll
athyglin sem söngvarinn fékk en hann gekk alla vega að honum, tók í
jakkalafið, kíkti á merkið og sagði um leið og hann leit á söngvarann: „Ný föt ... sama röddin.“




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
