ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Svæfandi Batman og kvikindislegur samferðamaður

09:40 › 25. júlí 2008

darkknightDagurinn í gær var ofboðslega annasamur og enginn tími til að blogga. Við erfðaprins fórum á nýju Batman-myndina kl. 16 í Laugarásbíói og skemmtum okkur konunglega. Algjör snilldarmynd. Ætlaði að skemmta samferðafólki mínu á eigin kostnað og sagði stundarhátt og svolítið ein-voða-vitlaus við erfðaprinsinn þegar við gengum út úr bíóinu: „Ég hélt að Mamma Mia væri allt öðruvísi en þetta!“ Ég horfði á soninn breytast í ókunnan, kuldalegan mann sem hraðaði sér á bílastæðið. Þetta var greinilega algjörlega misheppnað grín. Ég klagaði í Sigurð M, blaðamann á dv.is og Skagamann, á stoppistöðinni í Mosó í morgun en sá hann fölna og Vá, hvað ég er heppinn að eiga heilbrigða móður-svipur færðist yfir andlit hans. Í einhverri fljótfærni sagði honum (og hlakkaði svolítið yfir því) að ég hefði orðið á undan honum í vinnuna tvo morgna í röð af því að Guðný á skannanum hirti mig upp í Ártúni. SM fer nefnilega alltaf út við hættulegu stoppistöðina á Vesturlandsveginum, fikrar sig niður háskabrekkuna, fer undir brúna og síðan upp Súkkulaðibrekkuna, svona eins og ég gerði þegar ég var ung. Með því að játa þetta og monta mig hurfu töfrarnir og Guðný kom ekkert í morgun Ég þurfti því að taka leið 18 upp í Árbæ og niður í Hálsaskóg. Það var náttúrlega samt snilld að hitta þýðandann í strætó og fá nýjustu fréttir af hvolpunum á heimilinu. Hann vaknaði einmitt tvisvar í nótt við væl í þessum krúttum. Ég talaði reyndar við Skagakonu, búsetta í Rvík, alla leiðina í strætó en náði spjalli við þýðandann á leiðinni upp tröppurnar í vinnunni og leiðir skildi ekki fyrr en rétt fyrir utan mötuneytið. Ég mætti Sigurði M. á leið minni inn en þá var hann að koma frá því að stela kaffi frá Birtíngi. Í mötuneytinu er kaffið frekar hræðilega vont og kostar að auki 100 kall bollinn. SM sagði hæðnislega: „Bara komin?“ við mig og hló tryllingslega innra með sér. Held ég verði að fara að taka strætó klukkutíma fyrr til að lgeta launað honum lambið gráa.Þegar við komum heim í gærkvöldi upp úr kl. 19 (myndin var löng) var bara sest í leisígörl og beðið eftir glæpaþætti í sjónvarpinu ... en það var dottað og hrotið og loks steinsofnað. Ég sem ætlaði að blogga ... garg! Vaknaði nánast útsofin kl. hálffjögur í nótt við hlið steinsofandi erfðaprinsins í leisíboj. Þetta var bara fyndið, myndin var var stórkostleg en kannski við höfum verið svona þreytt eftir öll þessi flottu atriði sem dundu á okkur! Fólk með aldursfordóma myndi kenna aldrinum um hjá mér ef þetta hefði verið þannig en erfðaprinsinn er bara á þrítugsaldri og búinn að hlakka til að sjá þessa mynd um langa hríð. Annasamur og líklega langur föstudagur fram undan og best að fara að vinnnnnnna!!! Bendi á að nýja Vikan er mögnuð að vanda. Nú er forsíðuviðtal við Sigfríð Þórisdóttur, eiganda Pottagaldra og fv. dýrahjúkrunarkonu. Fyrir þremur árum fékk hún höfuðhögg og í kjölfarið heilablæðingu sem breytti lífi hennar algjörlega. Hún er t.d. algjörlega ófær um að gleðjast eftir blæðinguna. Ég fékk einmitt fyrsta köttinn minn á Dýraspítalanum hjá henni, hann Guðbrand minn sáluga. Hún er mikið breytt og það var sannarlega áfall að sjá þessa hressu konu breytast svona.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?