ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Frábærir Skagamenn, panik í Mosó og ör-bold

22:13 › 25. júlí 2008



Gjafmild SkagastelpaFékk fréttir frá Rauða krossinum í dag. Skagamenn hafa verið svo gjafmildir á
fatnað, húsbúnað og húsgögn að búið er að kúffylla skemmuna og ekki er pláss
fyrir meira. Þetta eru frábærar fréttir og segir margt um Skagamenn og
nærsveitunga sem hafa komið með heilu kerrurnar af dóti til að gefa palestínsku
flóttakonunum sem koma líklega til landsins eftir u.þ.b. mánuð. Ég átti að vinna næsta mánudagskvöld til að taka á móti hlutum en var tilkynnt að ég þyrfti ekki að mæta. Söfnunin hefur gengið framar öllum vonum! Húrra, Skagamenn!!!

Vinkona mín skutlaði mér í Mosó seinnipartinn, eiginlega upp á líf og
dauða. Brottför frá Lynghálsi var kl. 17.36 vegna gífurlegrar umferðar sem tafði
hana á leiðinni til mín. Strætó átti að fara frá Mosó kl. 17.45, eftir sjö mínútur!
Arggg! Ég treysti á að leið 15, sem Skagastrætó bíður alltaf eftir, yrði örfáum mínútum of sein
Esjanað vanda, og við brunuðum eftir Vesturlandsveginum, auðvitað á löglegum hraða.
Vinkonu minni fannst ekki hægt að ég væri búin að vinna kl. 17.30 og þyrfti að bíða
í rúman klukkutíma eftir að geta lagt af stað heim! Þegar hringtorgið hjá KFC kom í augsýn sáum við Skagastrætó aka út úr því áleiðis heim og
stressuðumst við heldur betur. Vinkonan sagðist bara elta strætó að
stoppistöðinni hjá Esjunni (Akrafjalli 2) en ég reyndi að senda einhverjum
Skagamanninum í vagninum hugskeyti og að hann fengi óviðráðanlega þörf fyrir að
fara út á stoppistöðinni í Lopabrekkunni í Mosó, þarna skömmu áður en komið er
að afleggjaranum upp í Mosfellsdal. Þetta tókst, elsku strætó beygði inn á
stoppistöðina, Skagamaðurinn þaut út í erindisleysu Í flugvélörugglega, vinkona mín fleygði mér út á ferð fyrir framan vagninn og ég þaut inn í strætó sekúndubroti
áður en hann lagði af stað á Skagann. Þvílík spenna. Einn karlinn af
Sætukarlastoppistöðinni sat í mínu sæti en ég var svo þakklát fyrir að hafa náð vagninum
að ég stóð ekkert í því að fleygja honum aftur í til hinna villinganna. Náði að
setjast fyrir aftan bílstjórann á Kjalarnesi og gat rétt úr fótunum. Annars er
sniðugt að sitja aftar í strætó t.d. skömmu fyrir ferð til útlanda, svona til að
venja sig við og læra að bregðast við krömpum, andnauð, ofsapanik og innilokunarkennd.

Illi lögreglustjórinn í DesperationÆtla að horfa á Stephen King mynd í kvöld kl. 22.20 á Stöð 2. Desperation
heitir hún! Ég las bókina fyrir nokkrum árum og minnir að hún hafi verið hrikalega
spennandi. Vona að myndin verði jafngóð ... þær geta verið misjafnar blessaðar.
Besta myndin eftir bók Stephens King er örugglega The Shining og kannski ekki skynsamlegt
að vonast eftir álíka gæðum ...

Bað erfðaprinsinn fyrr í dag um að kíkja á boldið fyrir mig þar sem ég
vinn alltaf svo lengi á föstudögum og hann sagði að hún þarna með varirnar (Taylor) hefði loksins sagt honum þarna sem missti konuna (Thorne)
að hún hefði sú sem ók á þarna konuna
(Dörlu) og olli dauða hennar. Framhald eftir helgi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?