Nýi bílstjórinn mætti á vaktina í morgun, úthvíldur eftir gott frí. Hann
kom okkur heilu og höldnu í Háholt í Mosó þar sem ríkti óvenjugott veður miðað
við staðsetninguna. Háholtsveðurbeltið er öðruvísi en öll önnur veðurbelti og
sækir kvikindisskap sinn alla leið til útlanda. Fárviðri og fellibyljir
hamast í Ameríku, ná í sig enn meira afli í ítölsku Ölpunum, smeygja sér
þaðan út á Atlantshaf, lauma sér inn í Faxaflóann og upp í Háholt í Mosó þar
sem það deyr út eftir að hafa farið illa með Skagamenn sem þurfa að húka þar í
fjórar mínútur í bið eftir leið 15. Vísindalega útreiknað!
Í Mosó sá ég ekki
betur en litli geitungurinn, sem laumaði sér með okkur frá Kjalarnesi fyrir nokkrum
vikum, hafi verið þar á sveimi. Hann hefur stækkað einhver ósköp og lagði
karlmennina, kuldaskræfurnar í skýlinu, í einelti.
Guðný í vinnunni náði að grípa mig í Ártúni, rétt á undan leið 18, sem
spældi örugglega DV-blaðamanninn sem hélt að hann yrði á undan mér í vinnuna.
Hann fór út á Vesturlandsveginum og gekk upp Súkkulaðibrekkuna. Það var samt sárt
að horfa á eftir unga fólkinu feta sig niður mjög háan kantinn og niður í hyldýpið
út frá Vesturlandsveginum. Stelpan í hælaháu skónum fékk þó góðan stuðning frá
vini/kærasta, annars hefði hún rúllað alla leið, eins og ég í fyrra. Ég mótmæli
þessarri stoppistöð með því að nota hana ekki og mun ekki gera fyrr en það eru
komnar tröppur þarna eða við fáum afhentar fallhlífar eða sigbúnað. Ungu
krakkarnir halda þau að þau séu eilíf, ég þekki lífið
betur og byltur þess ...
Um tíuleytið mætti viðtalsefnið mitt í hús, fékk förðun hjá Haffa og svo
lögðum við öll í hann í Kópavoginn og hafði ljósmyndari bæst í hópinn. Ég ætla að
fara að skrifa viðtalið, svona á meðan það er í fersku minni. Hætti frekar aðeins fyrr
á morgun og fer á fjögursýningu á Dark Knight! Það er uppselt á allar seinni sýningar út árið, held ég. Alla vega næstu daga.
Brooke er í miklu uppnámi vegna svika Nicks (sem svaf hjá dóttur hennar,
Bridgeti, sem er reyndar fyrri kona Nicks). Donna, systir Brooke, var næstum því
búin að forfæra Ridge en þá kom Brooke grátandi þangað og fór beint í fangið á
Ridge. Hann var ekki einu sinni búinn að þurrka varalit Donnu af vörum sér þegar
hann kyssti Brooke ástríðufullt. Bridget bað mömmu sína um að sýna Nick miskunn
og halda áfram að vera gifta honum, en Ridge mun án efa ekki sleppa Brooke svo
auðveldlega. Stefanía er alsæl, enda vill hún að Ridge og Brooke verði saman.
Ef hún bara vissi ... Donna beinir spjótum sínum nefnilega næst að eiginmanni Stefnaníu,
Eric, sem hún hefði ekki gert ef hún hefði fengið Ridge.
Nú fer unga kynslóðin
að koma inn. Það er t.d. ekki mjög langt í að Rick, bróðir Bridgetar og sonur
Brooke, fari að deita Taylor, fyrri konu Ridge og mömmu Tómasar og tvíburanna.
Held meira að segja að Taylor stingi undan öðrum tvíburanum sínum með
Rick. Taylor hefur í mörg ár keppt við Brooke um ástir Ridge sem er í raun hálfbróðir Ricks nema þeir eru ekki blóðskyldir. Ridge er Massimo í raun og því hálfbróðir Nicks.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
