ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Hin fullkomna móðgun

12:07 › 22. júlí 2008



Björgvin„Nú ert þú
alltaf svo flottur í tauinu, alltaf með svo góðar græjur og kannt alla nýjustu
frasana. En ert samt alltaf svo glataður.“
Björgvin Halldórsson við gítarleikara í fremstu
röð

Carl Billich
píanóleikari þótti með eindæmum kurteis maður. Eitt sinn var hann að spila á
balli í Þjóðleikhúskjallaranum og drukkinn maður var þar með frammíköll og
læti. Loks missti Carl þolinmæðina, stóð upp frá píanóinu, gekk að manninum og
sagði ákveðinn: „Mig langar að biðja
yður vinsamlegast um að halda munni ... og snæða óhreinindi.“

„Og hvað
með það?“
Elvis Presley, þegar
honum var sagt að Bítlarnir væru komnir í heimsókn til hans á Graceland

„Hvernig í
ósköpunum gæti ég átt í kynferðislegu sambandi við fimmtugan steingerving? Ég á
guðdómlegan kærasta sem er 28 ára gamall. Hvers vegna ætti ég að skipta honum
út fyrir risaeðlu?“ 
Carla Bruni um Mick Jagger

Bruce Springsteen„Tónleikar
hans standa yfir í fjóra og hálfan tíma. Það er pynting. Hatar hann áheyrendur
sína?“
John Lydon um
Bruce Springsteen

„Hvernig er mögulegt að hafa það að atvinnu sinni
í 30 ár að spila á munnhörpu og sýna ekki minnstu merki um framfarir?“
David
Sinclair, The Times, um Bob Dylan

„Hann hljómar
eins og hann sé með múrstein hangandi á kynfærunum og matvinnsluvél í kokinu að
búa til kæfu úr hálskirtlunum.“
Paul Lester,
Melody Maker, um Jon Bon Jovi

„Ólýsanlegur,
hæfileikalaus og óheflaður ungur skemmtikraftur.“
Bing Crosby um Elvis Presley

„Drengurinn
inniheldur meira plast en plastpoki.“
Melody Maker um Michael Jackson

„Ef myndin mín gerir að minnsta kosti eina
manneskju óhamingjusama þá hefur mér tekist ætlunarverk mitt.“
Woody Allen

„Frábær leikkona
... frá mitti og niður úr.“
Dame Margaret Kendal um Söru Bernhardt

„Ég hef
meiri hæfileika í mínu minnsta prumpi en þú í öllum líkamanum.“
Walter Matthau
við Barbra Streisand

„Hann
lítur út eins og hálfbráðnaður bolabítur úr gúmmíi.“
John Simon um Walter Matthau

„Við verðum að
viðurkenna að síðasta brúðkaup Elísabetar Taylor snerist um að selja ilmvatn
vegna þess að það er erfitt að selja ilmvatn þegar maður er gömul og feit
piparkerling.“
Johnny Rotten
(Sex Pistols)

Joan Collins„Joan Collins myndi selja eigið garnagaul ef hún
gæti það.“
Anthony Newley (fyrrverandi eiginmaður hennar)

„Mér finnst sjónvarp vera mjög fræðandi. Um leið
og einhver kveikir á því fer ég inn í bókaherbergið mitt og les góða bók.“
Groucho Marx

„Það væri mikil fróun í því að grafa hann upp og
fleygja í hann grjóti.“
George Bernard Shaw um William Shakespeare

„Gott fyrir
frama hans.“
Gore Vidal þegar hann frétti lát Trumans Capote

 „Sögur hennar eru ráðgátur ekki skáldskapur.
Persónur hennar eru ekki einu sinni nógu raunverulegar til að vera
skopstælingar. Mér líkar alls ekki við bækur Agöthu Christie.“
Ruth Rendell um Agöthu Christie

„Tilhugsunin um Karl prins að spjalla við
grænmetið sem hann ræktar er ekki svo óhugsandi þegar maður man eftir því að
hann hefur mikla æfingu í að spjalla við ættingja sína.“
Jaci Stephens, The Sunday Times

„Við bjóðum
svona fólki í tesamkvæmi en við giftumst því ekki.“
Lafði Chetwode um tilvonandi tengdason sinn, John
Betjeman

„Börn eru fín. Ef þau eru almennilega elduð.“ W.C. Fields

 „Við ættum að setja reykingamenn og litla krakka
saman og sjá hverjir verða fyrri til að gera hina brjálaða.“
John Simon um börn í flugvélum

„Ég horfði á Sumoglímu í sjónvarpinu í tvo
klukkutíma þegar ég áttaði mig á því að þetta var pílukast.“
Hattie Hayridge

„Hún var svo loðin að þegar hún lyfti upp höndunum
hélt ég að Tina Turner væri í armkrikunum á henni.“
Joan Rivers um Madonnu

„Tómarúm með
geirvörtur.“
Otto Preminger um Marilyn Monroe

„Hún er ein af fáum leikkonum í sögu Hollywood sem
er líflegri á ljósmyndum en á hvíta tjaldinu.“
Michael Medved um Raquel Welsh

Brooke Shields„Rússar elska Brooke Shields vegna þess að
augabrúnirnar á henni minna þá á Leonid Brezhnev.“
Robin Williams

„Ég þekkti hana áður en hún varð hrein mey.“ Oscar Levant um Doris Day

„Elizabeth
Taylor er svo feit. Hún dýfir verkjatöflunum sínum í majónes
.“ Joan Rivers um Elizabeth Taylor

„Ég vildi að ég hefði þekkt þig á meðan þú varst á
lífi.“
Leonard Louis Levinson við leiðinlegan mann

„Ég ætla
að leggja nafn þitt á minnið og síðan fleygja höfðinu á mér.“
Oscar Levant

„Hún fékk
fallegt útlitið frá föður sínum. Hann er lýtalæknir.“
Groucho Marx

 „Megi
kynlíf þitt verða jafngott og lánstraustið.“
J. Corigan

„Maðurinn
var svo lítill að hann var sóun á húð.“
Fred Allen

„Ein hrukka í
viðbót og allir halda að þú sért sveskja.“
Ókunnur höfundur

„Þú ert svo lítill að þegar fer að rigna ert þú sá
síðasti sem fattar það.“
Ókunnur höfundur

„Ég hef heyrt
skemmtilegri samræður í stafasúpu.“
Ókunnur höfundur



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?