ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Spýtum í lófana og sigrum þessa deild!

11:24 › 21. júlí 2008

Í morgun átti ég von á niðurdregnum farþegum í Skagastrætó eftir tapið hræðilega í gær gegn Blikum. Við erum engir aumingjar, Skagamenn, og vælum eitthvað, heldur spýtum bara í lófana og sigrum þessa deild ... ef okkur sýnist svo ... eða ef við nennum. Þetta er svo skrýtið, Gaui Þórðar er með bestu þjálfurum landsins, hnattarins ... hvað er eiginlega í gangi? Þorvaldur HalldórssonÞorði ekki annað en að kíkja á vegagerðarvefinn til öryggis áður en ég lagði í hann. Hviður á Kjalarnesi voru ekkert hættulegar (spennandi) svo ég skellti mér bara í bomsurnar og setti trefil um hálsinn. Þegar ég skalf þrátt fyrir það úti á stoppistöð vissí ég að ég hefði átt að fara í sokkabuxur. Brrrrrr. Ég settist fremst í leið 15 og sá því vel þá sem komu upp í vagninn. Ég varð vitni að því þegar ung og falleg stúlka kom inn, svartklædd með hvítan trefil. Henni tókst að borga fargjaldið í einseyringum og á svo niðrandi hátt að ég engdist. Hún var greinilega ekki hress með að þurfa að taka strætó með svona lúserum! Enginn fýlusvipur, bara prinsessufas ... sem mig grunar að hafi verið til að leyna því að það voru kannski bara 253 krónur sem hún borgaði, ekki 280 eins og kostar. Í stoppistöðinni Ártúni, biðskýli í Ártúnsbrekku, stóð enginn annar en Þorvaldur Halldórsson söngvari (Á sjó og fleiri flott lög). Ég heilsaði honum og kynnti mig... efaðist þó um að hann muyndi eftir því þegar ég tók viðtal við hann og konu hans fyrir sjö árum en ég man sko vel eftir þeim. Hann þóttist þó alveg muna eftir mér ... Þau hjónin eru flutt til Selfoss og að sjálfsögðu spurði ég hvernig þau hefðu farið út úr jarðskjálftanum í maí! „Jú, bara vel, það skemmdist ekki mikið hjá okkur!“ Ég varð að monta mig af óvenjumiklum skemmdunum í himnaríki á Akranesi og segja honum m.a. hvað munaði litlu að erfðaprinsinn hefði fengið lögfræðingatalið í nokkrum bindum yfir andlitið ... ja, ef jörð hefði skolfið um nótt þá hefði hann verið í rúminu og fengið skruddurnar í andlitið. Þorvaldur fór með bílinn sinn í viðgerð í Reykjavík í morgun og beið þarna eftir rútunni til Selfoss. Leið 18 kom á undan rútunni og ég vona innilega að rútubílstjórinn hafi munað eftir að stoppa og taka Þorvald með. Björk umhverfisvænÓ, þið fólk á bílum ... hvað þið missið af miklu að taka ekki strætó. Þið hefðuð ekki náð að spjalla við gömlu popphetjuna Þorvald Halldórsson í umferðarsultu einhvers staðar ...Ég hef hitt ýmsa SVOOO fræga á stoppistöðum og í strætó í gegnum tíðina. Ókei, kannski ekki alveg Björk, Bubba eða SigurRósu. Já, sem minnir mig á ... af hverju er fólk að skipta sér af því um hvað Björk Guðmundsdóttir syngur og hvar hún kýs að syngja? Þetta er sama og femínistar þurfa iðulega að þola. Dæmi: Hvar eru femínistarnir núna? Af hverju sinna þær þessu máli ekki frekar en hinu? O.s.frv. Annars held ég orð Bubba hafi verið gripin á lofti og jafnvel svolítið snúið út úr þeim. Bubbi talar bara út frá sjálfum sér og hefur fullt leyfi til þess. Hann og fleiri mega svo ekki gleyma því að umhverfisvernd er ekki tískufyrirbæri, heldur dauðans alvara!Jamm, komst blaut og frískleg og alveg klakklaust í vinnuna. Kaffið, sem kom rétt fyrir lokun á föstudaginn, þegar fattaðist að það var kaffilaust í fyrirtækinu, var drukkið af mikilli áfergju. Er nú með nýlega plötu í eyrunum, Andvakar, með hljómsveit sem heitir Andrúm. Rosaflott tónlist, minnir pínkulítið á Pink Floyd upp á sitt besta og gítarhljómurinn svolítið á Jet Black Joe. Söngkonan heitir Jóna Palla og er virkilega góð. Annars á ekkert að vera líkja tónlistinni þeirra við eitt eða neitt, en samt gott að vita að þetta er ekki svona Mariah Carey eða Celine Dion-tónlist. (hrollur). Hitti þýðandann á leið út úr leið 18. Hann sagði mér hreykinn frá því að Beagle-tíkin hans hefði eignast fimm hvolpa fyrir örfáum dögum. Kona þýðandans er nú í fæðingarorlofi að þessum sökum. Ógreiddi maðurinn var ekki sjáanlegur en Indverjarnir hressir og sætir að vanda.AmmælisneglurnarÍ fyrra hélt ég upp á 40 ára nagla-nag-afmælið mitt og bjóst við að geta haldið upp á hálfrar aldar, eða gullafmælið eftir níu ár. Ég veit að ég á ekkert að vera hreykin af þessu, heldur skammast mín því að þetta er t.d. það eina sem kemur í veg fyrir að karlmenn biðji mín og líka það eina sem orsakar að ég kemst aldrei á topp tíu yfir best klæddu konur landsins. Nú ber svo við að ég hef ekki við að naga, neglurnar vaxa eins og þær fái borgað fyrir það. Það stefnir greinilega allt í drossíuneglur á afmælinu, hvað er í gangi? Svo er andlitið á mér sléttara og flottara en það var fyrir bruna, það er eins og ég hafi farið í sérstaka andlitsmeðferð. Ég er sem sagt bæði falleg OG flott þessa dagana. Ætla að njóta þess til fullnustu að vera algjör gella þessa allra, allra langsíðustu daga mína sem fjörutíu plús.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?