ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Rangar verðmerkingar og pödduofsóknir

00:00 › 20. júlí 2008

Allt er lok, lok og læs í Einarsbúð
um helgar. Það venst ... og það lækkar líka vöruverðið þar alveg
helling. Við erfðaprins skruppum því í lágvöruverslun í dag og ákváðum
að kaupa eitthvað létt í kvöldmatinn.

Hinn íslenski neytandi hefur breyst ákaflega
mikið að undanförnu (takk, doktor Gunni) og það þykir loks orðið
hallærislegt að leika „greifa“ sem borgar allt á okurverði
möglunarlaust svo að fólk haldi ekki að það sé blankt! Ég hef breyst
líka og hika ekki við að leiðrétta mismun upp á eina krónu ... eða
myndi gera ef ég lenti í því.

P?tsur Það voru girnilegar Frísettapítsur
á tilboði í búðinni, eða ein sæmilega stór á 298 krónur. Borða helst
ekki pítsur en lét þetta eftir erfðaprinsinum og setti tvær í
innkaupakörfuna. Minntist á það við hann að ég ætlaði að vera vel
vakandi við kassann og það var eins gott, stúlkan stimplaði inn 369
krónur! Ég benti kurteislega á þetta, yfirmaður kom, gerði eitthvað
þegjandi og hvarf ... og á strimlinum sá ég að ég hafði fengið aðra
pítsuna ókeypis, borgaði 369 krónur fyrir hina. Fékk sem sagt
skaðabætur og að auki ósköp sætt bros frá kassadömunni. Ég snarhætti
við að snarhætta að fara framar í þessa búð (þegar Einarsbúð er lokuð)
en ætla svo sannarlega að fylgjast vel með alls staðar. Ég stundaði þó
þögul mótmæli í búðinni og keypti ekkert sem var óverðmerkt, jafnvel
þótt mig vantaði það. Ég er orðin svo þreytt á því hvað farið er illa
með almenning á Íslandi. Það er okrað hryllilega á okkur víðast hvar,
lánin okkar eru verðtryggð og siðleysi og klíkuskapur viðgengst víða.
Eins og mér þykir vænt um landið mitt.

Kóngulóarmaðurinn Einu sinni ákvað ég að flytja aldrei úr landi,
sérstaklega út af pöddumálum en pöddur verða reyndar sífellt
fyrirferðarmeiri hérna, sbr. geitunga og býflugur sem námu hér
endanlega land um miðjan áttunda áratug síðustu aldar. Ég gæti því
alveg flutt úr landi skordýralega séð!

Vinkona mín býr í einbýlishúsi hér
á Skaganum. Gróinn garður er umhverfis húsið hennar en ekki mikið af
blómum þar. Hún er ekki sérlega pödduhrædd en er að sturlast yfir
kóngulóm sem ofsækja hana í tugatali, hún bar hátt í 50 kóngulær út úr
húsinu í gær. Hún er með tuskuæði en samt ná kvikindin að vefa stóra
vefi í íbúðinni hennar, alla vega á meðan hún sefur. Þetta er ekki
eðlilegt og hún ætlar að flytja að heiman í viku og láta eitra allt
húsið á meðan. Hún hefur verið að vinna í garðinum og helluleggja. Hún
þurfti að færa nokkrar hellur daginn eftir og þvílíkt pödduríki sem var
komið strax undir nýlagðar hellurnar. Fiskiflugur eru líka í tonnatali
í íbúðinni hennar og núna veit ég hvers vegna þær hafa ekki sést í
himnaríki þetta sumarið, þetta fljúgandi, gómsæta sushi fyrir kettina
mína er greinilega flutt til kattarlausu vinkonu minnar. (Fékk svo
mikið sjokk þegar ég setti inn orðið "spider" á google.is að ég ákvað að stela
frekar mynd þar af kóngulóarmanninum).



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?