Mikið hvín skemmtilega í himnaríki núna og fyrstu regndroparnir eru farnir
að falla. Það er svolítið spennandi að fá leifar af fellibyl svona um hásumar.
Sjá: http://esv.blog.is/blog/esv/entry/595578/
„Nú
bregður svo við að allar líkur eru til þess að restar fellibyljarins Bertu stefni beint á
landið á morgun.“ segir Einar veðurfræðingur orðrétt í pistli sínum í
dag. Kannski kemur ekki mikið rok en það mun a.m.k. rigna einhver ósköp.
Það hefur
verið gaman að horfa á tunglið koma
upp á kvöldin og ég tók þessa mynd í fyrrakvöld. Svo hvarf það bak við ský
eftir því sem það hækkaði á lofti. Nördinn í mér steingleymdi tilveru stjörnukíkis
himnaríkis en þarna hefði verið flott tækifæri til að kíkja á mánann og það án
þess að fá hálsríg.
Við erfðaprins gerðum heiðvirða tilraun til að horfa á Formúluna í hádeginu en sjónvarpið
fraus í sífellu og líklega þarf að skipta um loftnet fljótlega. Ég held að minn
maður, Hamilton, hafi unnið. Hann datt niður í þriðja sæti eftir að hafa tekið
bensín í restina en eftir það ... bara truflanir í sjónvarpinu. Þá er ekkert að
gera nema fara í bað, setja í þvottavél og slíkt. Nýlega keypti ég mér sjampó í
Heilsuhúsinu, rosa vistvænt og náttúrulegt. Alltaf þegar ég helli úr brúsanum í
lófann fer ég á huganum inn á fund hjá sjampófyrirtækinu. Framkvæmdastjóri: „Hvað eigum við að
gera til að auka söluna á
þessu frábæra sjampói okkar?“ Starfsmaður: „Hvernig væri að víkka gatið á sjampóbrúsanum svo að fólk noti meira af
því?“ Framkvæmdastjórinn: „Snilld,
gerum það.“ Já, þetta er þannig sjampóbrúsi.
Held ég kúri mig bara undir sæng á eftir og horfi á eitt stykki vídjómynd,
það er akkúrat veðrið til þess. Horfði á National Treasure II í gærkvöldi og
hafði gaman af. Nú er það tölvuspennumorðmynd sem verður sett í tækið.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
