Yndisleg strætóferðin í morgun. Flott rúta flutti okkur í Mosó og það var ekkert erfitt að líta svolítið niður á hina bílana, svona þannig. Það var þónokkur bílaumferð í morgun og skrambi hvasst á köflum á Kjalarnesinu. Það vantar alveg annan vindmæli þangað. Þessi eini er staðsettur rétt áður en maður ekur niður í Kollafjörðinn áleiðis í bæinn. Þar er oft hvasst en oft er miklu klikkaðra á milli gangna og Grundarhverfis. Stökk léttilega út úr 27 í Mosó þrátt fyrir að hafa misreiknað fjarlægðina niður, enda hoppið úr mun hærri vagni en venjulega, hálfgerðri fjallarútu, það hefði kostað sjúkrahúsvist á tímabilinu fyrir Betu en ég missteig mig ekki einu sinni núna, bara hló tryllingslega innra með mér yfir þessum bata. Þeir (40-50) sem halda að elli kerling sé farin að angra þá ættu að prófa eitt stykki sjúkraþjálfun áður en lagst er í kör ...
Elsku Indverjinn minn var í leið 18 og við brostum hvort til annars og buðum góðan dag, ég fattaði þegar ég hafði sleppt orðinu að ég notaði óvart úrdú eins og bjáni. Góðan dag á úrdú táknar nefnilega kjánaprik/geitahland á hindí. Hefði getað orðið alvarleg móðgun en ég bjargaði því með skærum hlátri og orðinu djók, sem táknar það sama á öllum tungumálum heims. Ég sat allt of framarlega í vagninum, pínulitla vagninum sem notaður er fyrir leið 18, og sá því miður ekki hvort allir karlarnir mínir væru með, það grillti alla vega hvergi í þann ógreidda. Indversku tölvusnillingarnir fóru óvænt út á sama stað og ég, okkur þýðandanum til mikillar skelfingar, við tókum á rás og hlupum hratt hönd í hönd að bakdyrum hússins okkar og ég opnaði skjálfandi á meðan hann setti sig í karatestellingu. Indverjarnir horfðu vingjarnlega á okkur þegar þeir gengu framhjá, annað hvort svona lúmskir eða bara meinlausir. Slíkir útlendingar eru til, skilst mér. Þar sem adrenalínið var hvort eð er komið í gang tók ég hringspark (a la Chuck Norris, sjá mynd) á kokkinn þegar ég gekk í gegnum matsalinn og sagði honum að ef hann byði nokkurn tímann aftur upp á „nýja ýsu“ sem væri þannig útlítandi að Guðný spyrði mig hvort þetta væri síld, þá yrði mér að mæta. Það gerðist einmitt á mánudaginn síðasta. Það kreppir víða að og sparnaður orðinn geigvænlegur.Eigið dásamlegan dag!
Blogg
Kokkurinn hringsparkaður og líklega meinlausir Indverjar
00:00 › 2. júlí 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
