ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Nokkrir góðir Norrisar

13:32 › 19. júlí 2008



Chuck NorrisMinn maður er á ráspól
í Formúlunni
og gengur vonandi vel á morgun. Af því tilefni koma hér nokkrir sígildir
Chuck Norrisar:

-Chuck Norris er
oft í brúnum skóm við svarta beltið sitt. Enginn hefur nokkru sinni dirfst að gera
athugasemd við það. Aldrei.

-Chuck Norris er
eina manneskjan í heiminum sem getur sent hringspark með tölvupósti.

-Chuck Norris
getur kveikt í með stækkunargleri ... að nóttu til.

-Þegar Chuck
Norris var neitað um morgunverð á McDonald´s vegna þess að klukkan var orðin 10.35
(lokað 10.30) hringsparkaði hann staðinn svo harkalega að hann breyttist í KFC.

-Þegar Chuck
Norris dettur í vatn verður Chuck Norris ekki blautur. Vatnið verður Chuck
Norrisað.

-Chuck Norris fann
upp svarta litinn. Í reynd uppgötvaði hann allt það litróf sem mannlegt auga
nemur. Nema bleikt. Tom Cruise fann upp bleikt.

MC Hammer-Chuck Norris
getur snert MC Hammer.

-Chuck Norris fór í
rússneska rúllettu með fullhlaðna byssu og sigraði.

-Þegar Chuck
Norris gefur blóð vill hann engar nálar eða slöngur, heldur skammbyssu og fötu.

-Það eru engin
steratröll í hafnabolta, bara leikmenn sem Chuck Norris hefur andað á.

 

Njótið dagsins og passið ykkur á sólinni í dag, kæru bloggvinir.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?