ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 6m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Nördar, lundar, brjóst og bold

00:00 › 18. júlí 2008

Undanfarið hef ég haft mikla ánægju af því að horfa á lundavefmyndavélina frá
Vestmannaeyjum, http://puffin.eyjar.is/view/index.shtml
en þar má ekki bara sjá lunda, heldur líka fallegt landslagið í kringum Eyjar.

Halldór
frændi kíkti til mín í vinnuna í dag og ég sýndi honum þessa vél og líka hvar
hægt væri að finna vefmyndavélar alls staðar að af landinu, eins og ég sýndi
bloggvinum mínum um daginn; eða á http://www.danieldesign.se/icelandrightnow.html.

Fékk undirfurðulegt
augnaráð frá frænda og flýtti mér að segja: „Já, ég er sko algjör nörd.“

„Nörd?“ sagði
frændi aðvarandi. „Þú færð yfir þig skaðabótamál frá fólkinu sem verslar í
Nexus ef þú kallar þig nörd, þú ert svo miklu verra en það!“

Frændi var í
gírnum, enda nýbúinn að stjórna símatíma milli 11 og 12 á Útvarpi Sögu. Ég
heyrði hluta símatímans og skemmti mér vel. Það skyldi þó ekki vera að ég fari
að hlusta á útvarp aftur, það yrði þá Halldóri að kenna.

Heilsan er öll að koma til og svo er ég líka óðum að jafna mig eftir
áfallið sem skall á öllum brjóstgóðum konum fyrir skömmu ... eða að brjóst væru
dottin úr tísku. Við Pamela berum okkur samt vel og vitum að tískan fer í eilífa
hringi.

Allt er að verða vitlaust í boldinu enn eina ferðina. Bridget er ólétt, eins
og allir vita, og Nick játaði það loksins fyrir fyrir konu sinni, Brooke, sem
er mamma Bridgetar, að hann hefði sofið hjá Bridget, fyrrverandi konu sinni og núverandi
stjúpdóttur, og barnað hana kvöldið góða þegar Brooke kyssti Ridge, fyrrum mann
sinn til margra hjónabanda. Brooke bilaðist við fréttirnar, tók kast á Nick,
fleygði honum útbyrðis af snekkjunni, henti til hans björgunarhring og sigldi á
brott, þó eftir að hafa látið strandgæsluna vita. Henni fannst líka ódrengilegt
af Nick að minna hana á að hún ætti Hope litlu með Deacon, fyrrum tengdasyni sínum.
Brooke hefur stundað það að stinga undan Bridget, dóttur sinni, sem fyrirgefur
mömmu alltaf. Nick var sem sagt annar maðurinn sem hún náði frá henni. Það
hefur ekkert verið af neinni illmennsku hjá Brooke, heldur hafa þessir menn
verið sálufélagar hennar.

Á sama tíma á sjúkrahúsinu. „HA!!! Er ég komin níu vikur á leið?“
spurði sjokkeruð Bridget lækninn. „Þá er Nick ekki faðir barnsins, heldur Dante, núverandi
kærasti Feliciu, systur minnar, en við ætluðum að giftast um daginn þótt hann
ætti barn með Feliciu, barnið sem Nick hélt lengi vel að hann ætti.“ Auðvitað
sagði hún ekki allt þetta við lækninn en alla vega fyrri partinn. Hún reynir árangurslaust
að hringja í Nick til að segja honum að þegja áfram yfir þessu en sorrí, of
seint. Sími Nicks hlýtur líka að vera ónýtur í sjónum, nema hann sé enn í
snekkjunni hjá Brooke.

Hvað verður nú um fullkomna hjónabandið þeirra
Brooke og Nick. Skemmir þetta samband Dante og Feliciu? Ná Brooke og Ridge
saman enn eina ferðina eða er Donna, systir Brooke, búin að ræna hjarta Ridge,
svona áður en hún nær í pabba Ridge, hann Eric?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?