ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Ógreiddi maðurinn horfinn!

10:03 › 16. júlí 2008

LeðurfésNýi bílstjórinn kom okkur „óvenjumörgumfarþegum-miðaðviðaðþaðersumar“ heilu og höldnu í Mosó. Einhver gæfa er yfir mér, ég vann heima í gær og slapp algjörlega við 11 manna beygluna sem var víst notuð í gærmorgun og rétt dugði undir fólkið. Alvörudrossía kom í dag, eða venjulega rútan. Þegar ég fór inn í leið 18 við Ártún áttaði ég mig á því að ógreiddi maðurinn er að öllum líkindum horfinn úr lífi mínu.Heilsan var mun skárri í gær en undanfarið en þá átti ég einmitt pantaðan tíma hjá dr. Sigríði, alveg týpískt, og svo í morgun vaknaði ég stokkbólgin, heit viðkomu og eins og hamstur í framan. Prófarkalesararnir mínir hér í vinnunni vilja að ég fari á slysó og ég sagði "jájá" til að róa þær. Ég fer ekki rassgat á slysó með óþægindi í andliti eftir sólbruna fyrir 9 dögum. Mér yrði fleygt öfugri út ... en líklega vegna útlits (leðurfés) sem vinnur gegn mér þessa dagana og hræðir lítil börn og gamalmenni.Þeim DV.IS-mönnum tókst að plata mig svolítið, eins og kannski einhverjir hafa rekið augun í, og standa flutningar fyrir dyrum með tíð og tíma. Heiða skessa sagði orðrétt að það yrði nú "soldið mál að dröslast með allt þetta bold, strætóana, Tommana og kisurinar yfir á díví". Það er rétt hjá henni, það verður líklega eitthvert mál! Fyrirgef Reyni Trausta seint en hann setti Ý í nafnið mitt í DV í gær, Gurrí á það að vera og ég fyrirgef nokkrum bloggvinum alveg þótt þeir ruglist á þessu en ef ég snappa einn góðan veðurdag vegna þessa þá verður það gagnvart Reyni. Óttist eigi.Megi dagurinn ykkar verða æðislegur og frábær ... mæli svo um og legg á!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?