ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Breytingar og aftur breytingar ...

14:31 › 14. júlí 2008

Vakna á undan klukkunniÉg vakna eins og kornflakes-auglýsing á undan klukkunni þessa dagana og það nokkrum sinnum í morgun. Mjólkurlaust var í himnaríki í morgun svo ekki var hægt að drepa tímann með latte-drykkju en einhvern veginn leið tíminn fram að strætóferð. Nýr bílstjóri sat undir stýri á 27B, hinn nýi bílstjórinn í fríi, og var bílstjórakvendið af Skaganum í fremsta sætinu til að kenna honum á vagninn og örugglega hvernig hann ætti að umgangast háæruverðuga farþegana af Skaganum. Hann kyssti á hönd mína við komu en kossinn lenti eiginlega bara á græna kortinu. Við Lilja sátum saman alla leið í Ártún og höfðum það kósí. Engin Elín kom inn í leið 15 í Mosó og aðeins fimm Indverjar voru í leið 18, enginn ógreiddur maður og þýðandinn hlýtur að vera kominn í frí. Það má ekki "skreppa frá" þá breytist allt! Óska ykkur dásamlegs dags, kæru bloggvinir, þótt seint sé, eða 14.30 ...



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?